Ellý Ármanns og Hlynur giftast 13. júní

Ellý Ármannsdóttir og Hlynur Jakobsson.
Ellý Ármannsdóttir og Hlynur Jakobsson.

Ellý Ármannsdóttir og Hlynur Jakobsson ætla að ganga í heilagt hjónaband 13. júní 2020. Parið hnaut um hvort annað fyrir um tveimur árum en parið trúlofaði sig fyrr á þessu ári. 

„Já það er rétt. Ég sagði já!“ segir spákonan, listmálarinn og fyrrverandi sjónvarpsþulan Ellý, í samtali við Fréttablaðið. „Hann Hlynur er allt sem ég óska mér,“ bætir hún við um draumaprinsinn sem stundum er kenndur við veitingastaðinn Hornið sem faðir hans opnaði í miðbæ Reykjavíkur fyrir rúmum fjörutíu árum.

Parið ætlar að bjóða gestum í kaffiboð og óska þess nú heitt að sólin skíni þarna 13. júní 2020 því veislan verður utandyra. 

Smartland óskar Ellý og Hlyn hjartanlega til hamingju með væntanlegt brúðkaup. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál