Bjarni aflýsti afmæli sínu vegna veðurs

Bjarni varð að fresta afmælismóttöku sinni.
Bjarni varð að fresta afmælismóttöku sinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Óveðrið í dag hefur sett strik í reikninginn fyrir marga. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hugðist fagna fimmtugsafmæli sínu í Listasafni Reykjavíkur í dag en neyddist til þess að fresta veislunni vegna veðurs. Bjarni varð fimmtugur 26. janúar. 

Afmælismóttakan átti að fara fram á milli fimm og hálfátta í kvöld í listasafninu. Bjarni fylgdist greinilega vel með veðurspám og aflýsti móttökunni á miðvikudaginn. 

„Því miður er nauðsynlegt vegna veðurspár að slá afmælismóttökunni á frest. Það verður þá bara þeim mun meira gaman þegar af henni verður. Við finnum fljótt aðra dagsetningu. Ég vona að þetta komist vel til skila til allra.
Með kveðju,
Bjarni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál