Kristín Sif: „Bréfið frá honum gerði kraftaverk“

Kristín Sif Björgvinsdóttir er viðmælandi Sölva.
Kristín Sif Björgvinsdóttir er viðmælandi Sölva. mbl.is

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona og íþróttakona, er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. Í viðtalinu ræða þau um allt milli himins og jarðar. Eftir að hafa misst manninn sinn á hræðilegan hátt hefur Kristín komist á verðlaunapall á Norðurlandamóti í boxi og verið valin iðkandi ársins í Crossfit Reykjavík. Í viðtalinu segist hún hafa þurft að berjast fyrir því hvern einasta dag að velja rétt viðhorf og segist sannfærð um að sigur mannsandans felist í að halda alltaf áfram og sjá það fallega í lífinu.

Kristín Sif hafði búið með unnusta sínum og barnsföður Brynjari Berg Guðmundssyni í nærri tólf ár þegar hún kom að honum látnum á heimili þeirra. Hann hafði þá fallið fyrir eigin hendi.

„Það voru öll ljósin slökkt og pressukanna á borðinu sem var ekki búið að pressa niður kaffið … og það var eitthvað skrýtið og ég kalla á hann og kalla aftur og ég veit ekki hvort það hafi verið af því hann sagðist ætla að fara að taka til í bílskúrnum og ég fer inn í bílskúr og hann var bara alveg við hurðina og þarna fann ég hann,“ segir Kristín.

Brynjar hafði verið í fíkniefnaneyslu um tíma án vitundar Kristínar. Þegar það komst upp fór hann í meðferð á Vogi, sem gekk vel. En svo kom bakslagið sem endaði á þennan hræðilega hátt.

„Það bara springur allt í tætlur, heilinn í mér sprakk og hjartað í mér sprakk og mér leið svona eins og ég væri snjórinn í sjónvarpinu þegar loftnetinu er kippt úr sambandi.“

Hún segir að eitt það besta í bataferlinu hafi verið þegar hún fann bréf frá Brynjari, sem hún ákvað að lesa með aðstoð sjúkrahúsprests.

„Þegar ég var að ganga frá fötunum hans fann ég bréf til mín í sokkaskúffunni hans, aftast. Hann skrifaði þetta bréf þegar hann var í meðferð, en hann sýndi mér það aldrei. Það var rosalega erfitt að finna þetta bréf, af því ég hélt að í því væri eitthvað sem segði að þetta væri mér að kenna. Það var fyrsta hugsunin mín af því að ég hélt að þarna væri ég að finna kveðjubréf,“ sergir Kristín. 

Hún hringdi strax í Vigfús Bjarna Albertsson sjúkrahúsprest, sem hafði hjálpað henni í sorgarferlinu, og opnaði bréfið með hann í símanum og segir að það hafi verið góð ákvörðun.

„Þetta er bara eitt það besta í bataferlinu sem ég hef gert eftir að hann dó að lesa þetta bréf … hann hafði skrifað þetta í meðferð og í bréfinu stóð hvað hann elskaði mig og krakkana mikið og hvað hann hlakkaði mikið til framtíðarinnar með okkur og þakkaði mér fyrir allan stuðninginn. Þarna tók hann allar þessar sjálfsásakanir sem höfðu poppað upp hjá mér, mörgum mánuðum eftir að hann dó,“ segir Kristín og bætir við að ef hún hefði hent bréfinu væri hún eflaust enn uppfull af ásökunum í eigin garð.

Kristín Sif ákvað strax að halda lífi sínu áfram fyrir sig og börnin sín og hefur hvern einasta dag eftir þetta gert sitt allra besta til að velja að sjá það góða í lífinu. Hún komst nýverið á verðlaunapall á Norðurlandamóti í boxi og var valin iðkandi ársins í Crossfit Reykjavík.

Í viðtalinu ræða Sölvi og Kristín um ævintýrin á Falklandseyjum, ástríðuna fyrir boxinu, mikilvægi þess að velja rétt viðhorf í lífinu og margt margt fleira.

Viðtalið má hlusta á hér fyrir neðan:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál