Flutti börnin sín í skjól eftir hótanir frá barnaníðingum

Mikael Torfason er gestur Sölva Tryggvasonar.
Mikael Torfason er gestur Sölva Tryggvasonar. Ljósmynd/Matthias Horn/Burgtheater

Mikael Torfason, sem hefur ritstýrt mörgum af stærstu fjölmiðlum landsins er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Eftir Mikael liggja fjölmargar bækur og um árabil ritstýrði hann DV, Fréttablaðinu, Fréttatímanum og tímaritum Birtings. Í viðtalinu ræða hann og Sölvi alls kyns sögur sem áttu sér stað bak við tjöldin. Ein sú stærsta var þegar tugþúsundir manna vildu leggja niður DV eftir frétt um barnaníðing á Vestfjörðum sem fyrirfór sér nóttina áður en fréttin kom út.

„Fréttin er alveg rock solid….en svo getum við ekki setið á okkur, þannig að ég breyti fyrirsögninni á forsíðu í að taka það sérstaklega fram að hann hafi verið einhentur. Svo gerist það um nóttina áður en blaðið fer í prentun…að hann hengir sig. Þessi frétt var glannalega framsett. Í fullkomnunaráráttunni minni á þessum tíma fannst mér að það hefði verið betra að standa fastari fótum og vera ekki með einhvern fíflaskap í þessu máli og sleppa því að segja að hann væri einhentur. Þetta var fullmikið „british tabloid“…en það var rosalega lærdómsríkt ferli sem fylgdi þarna á eftir að vera svona umdeildur,“ segir Mikael.

Dagana eftir að fréttin fór úr skrifuðu tugþúsundir Íslendinga undir undirskriftarlista um að það ætti að leggja niður DV og Mikael þurfti að fara með börnin sín út á land og láta þau vera þar í kjölfarið, þar sem hann lenti í alls kyns hótunum og segir að barnaníðingar hafi fengið byr í seglin eftir málið.

„Ég lenti alveg í því að leigubílar neituðu að keyra mig og ég lenti alveg í því að barnaníðingar komu inn á ritstjórnina og heim til mín og sögðust vita hvar börnin mín væru og svo framvegis. Þeim fannst þeir vera komnir með uppreisn æru þarna og Steingrímur Njálsson kom inn á ritstjórnina af því að hann taldi þarna að núna sæi fólk loksins hvað barnaníðingar hefðu verið mikil fórnarlömb fjölmiðla og ég flutti börnin mín í skjól út á land..við sóttum þau bara í skólann og keyrðum þau alltaf austur fyrir fjall þess á milli,“ segir Mikael.

Í dag býr Mikael með fjölskyldu sinni í Vínarborg, þar sem hann fæst mest við að skrifa handrit fyrir leikhús, kvikmyndir og sjónvarp. Í viðtalinu fara hann og Sölvi yfir stórmerkilegan feril Mikaels, erfiðustu fréttirnar, eigendaafskipti, gildi í blaðamennsku og margt margt fleira.

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál