Missti sakleysi sitt þegar hann var rekinn

Sölvi Tryggvason var rekinn frá Stöð 2 árið 2008.
Sölvi Tryggvason var rekinn frá Stöð 2 árið 2008.

Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður sagði frá því í viðtali við Skoðanabræður þegar hann var rekinn af Stöð 2 í árslok 2008. Hann segir að það hafi verið þá sem hann missti sakleysi sitt sem fjölmiðlamaður og telur ljóst að uppsögnin hafi tengst því að hann hafi byrjað að „pönkast“ í lífeyrissjóðum.

„Tuttugasta desember held ég að það hafi verið sem ég tek viðtal við Geir H. Haarde og spyr hann út í lífeyrissjóðina. Þá er ég líka búinn að vera gera alls konar aðra hluti, ég er búinn að vera svolítið óþekkur, og ég áttaði mig ekki á því á þeim tíma að það væru kannski umræður um mig í stjórninni. Eitthvað um að þetta væri bara ekki alveg í lagi, afþví ég er bara fréttamaður sem held að ég eigi að segja sannleikann,“ sagði Sölvi.

Skömmu eftir viðtalið við Geir, sem þá var forsætisráðherra, var Sölva sagt upp störfum hjá sjónvarpsstöðinni. Ari Edwald, sem nú er forstjóri Mjólkursamsölunnar, stýrði þá fjölmiðlasamsteypunni. Sölvi benti á í þættinum að Ari hafi setið í stjórnum lífeyrissjóða.

„Þegar ég er rekinn fer ég í mitt solo mission,“ segir Sölvi. Hann hafi farið og hitt fólk til að komast til botns í málinu en einnig í ljósi þess að hann sá fram á að starfa áfram í fjölmiðlum. „Ég hitti Jón Ásgeir, Björgólf Thor, Davíð Oddsson, Ingibjörgu Sólrúnu og Geir H. Haarde, og það voru allir til í að hitta mig.“

Sölvi heldur áfram: „Geir Haarde segir við mig.

„Það var hringt í mig korteri eftir að þessi þáttur var búinn af yfirmanni Landssamtaka lífeyrissjóða og ég spurður: Hvaðan hefur þessi strákur þessar upplýsingar?“ segir Sölvi. Formaður Landssamtaka lífeyrissjóðanna var þá Arnar Sigurmundsson.

„Þegar yfirmaður Landssamtaka lífeyrissjóða hringir í forsætisráðherra korteri eftir að eitthvað viðtal er búið þá ertu farinn að hitta á einhverja skrítna strengi, þannig að ég held að ég sé ekkert í einhverjum svakalegum samsæriskenningum þegar ég segi að það var þægilegt að losna við mig,“ sagði Sölvi.

Sölvi heldur nú úti sínum eigin fjölmiðli með hlaðvarpi sínu, sem er eitt það vinsælasta á Íslandi. Hann ræddi þá starfsemi ásamt ýmsu öðru í ítarlegu viðtali við Skoðanabræður, þar sem enn frekar var fjallað um feril Sölva á sjónvarpsskjánum. Sömuleiðis furðusögur úr bransanum, eins og af því að fá Kára Stefánsson í viðtal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál