Ennþá tabú ef konur eru með yngri mönnum

Svala Björgvins er gestur Sölva Tryggvasonar í nýjasta hlaðvarpsþætti hans, …
Svala Björgvins er gestur Sölva Tryggvasonar í nýjasta hlaðvarpsþætti hans, Podcast með Sölva Tryggva.

Svala Björgvinsdóttir, sem var orðin stjórstjarna í poppbransanum á unga aldri, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Svala hefur tekið alls kyns beygjur á ferlinum, en alltaf haldið í ástríðuna fyrir að búa til tónlist. Hún þekkir ekkert annað en að eiga einn frægasta einstakling Íslands sem pabba og fékk músíkina nánast í vöggugjöf. Svala hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki eftir að hún eignaðist nýjan kærasta, en segist sjálf frekar hissa á að fólk nenni að pæla í því hvern hún deitar. 

„Mér finnst að það ætti að vera jafnrétti í þessu. Það er ekki verið að slá upp fyrirsögnum jafnmikið þegar karlmenn byrja með yngri konum. Það er ennþá eins og það sé eitthvað tabú að konur séu með yngri mönnum. Ef að fólk er fullorðið og vill hittast er það ekki bara besta mál? Ég skil ekki alveg þennan mikla áhuga á því hvern ég er að deita. Það er bara ekkert áhugavert við það. Hverjum er ekki drullusama.“

Í viðtalinu ræða Sölvi og Svala um tónlistarferil Svölu, sem er orðinn langur og stórmerkilegur. Þegar hún var ung var í raun búið að ákveða að gera hana að stórstjörnu og öllu var tjaldað til, en síðan gerðust atburðir fyrir utan tónlistina Sem Svala hafði lítið um að segja. 

„Svo lendi ég í ofboðslega leiðinlegum málum með „labelið“ mitt. Platan mín átti að koma út 16. september 2001 og ég var í New York þegar árásirnar 11. september áttu sér stað. Ég átti að fara að túra og vera með stóra tónleika þegar það slokknar eðlilega bara á öllu. Við keyrðum inn til New York 10. september, fórum að sofa og vöknum svo daginn eftir og það vita allir hvað gerðist þá. Ég var á hóteli við Hudson-ánna nokkuð nálægt Tvíburaturnunum. Borginni var lokað og við vorum föst þarna í 3 daga. Ég var með tónleika rétt fyrir utan New York viku seinna og ég þurfti að opna tónleikana með ræðu um Ameríku og 11. september fyrir framan 10 þúsund manns. Það var magnað atriði.”

Eftir þetta var öllu frestað og síðar varð samruni hjá plötufyrirtækjum sem endaði með því að Svala mátti ekki spila tónlist í langan tíma, eða allt þar til hún vann málaferli gegn plöturisanum

„Svo gerist það að „Priority“ sem að ég var hjá eru lentir í fjárhagslegum vandræðum og þeir bara selja útgáfuna til „Capitol“ og þeir selja það þannig að þeir eru bara að kaupa safnið af tónlistinni, en ætla sér ekki að gefa út neina nýja tónlistarmenn. Þannig að ég er allt í einu búin að færast yfir og allir hjá „Priority“ missa vinnuna og þeir ætluðu ekkert að gefa mig út, en áttu samt nafnið mitt og tónlistina mína. Ég var sett í skúffu bara. Við förum í málaferli sem taka 3 ár og ég gat ekkert gefið neitt út eða notað nafnið mitt allan þann tíma. Við unnum málið og ég fékk nafnið mitt, „masterana“ og allt það og skaðabætur og þá gat ég loks byrjað aftur að gera tónlist.”

Í viðtalinu fara Svala og Sölvi yfir magnaðan feril Svölu, ótrúleg augnablik á ferðalaginu og nýja kaflann í lífi hennar eftir að hún flutti heim til Íslands á nýjan leik í eftir margra ára útlegð í Bandaríkjunum.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinin á hlaðvarpsvef mbl.is. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál