Kynntist Kobe Bryant og Lebron James

Ragga Ragnars.
Ragga Ragnars. mbl.is/Lárus Sigurðsson

Ragnheiður Ragnarsdóttir er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. Ragga, eins og hún er kölluð, var ein öflugasta sundkona Íslands um árabil og fór meðal annars á tvenna Ólympíuleika. Í þættinum segir hún meðal annars sögu af því þegar hún hitti bandaríska körfuboltalandsliðið á Ólympíuleikunum 2008, þar sem meðal annars voru stórstjörnurnar Kobe Bryant og Lebron James:

„Ég kynntist þeim mjög vel. Ég spottaði þá í matartjaldinu og hugsaði með mér að ég yrði að fá selfie með þeim. Sá fyrsti sem ég hitti úr liðinu varð uppnuminn og sagði:

„Hver ert þú? Má ég fá selfie með þér?“

Svo fór ég aftur til baka í okkar hús og aðeins nokkrum mínútum seinna er mér sagt að það sé verið að spyrja eftir mér og þá stóð hálft bandaríska körfuboltalandsliðið þarna fyrir utan og vildi hitta mig. Allir aðalgæjarnir og mér fannst þetta mjög fyndið allt saman. Svo fórum við í nokkur partí með þeim eftir að allir voru búnir að keppa og þá fór ég á hæla sem eru 15 sentimetrar og ég er 188 cm, þannig að þá var ég orðin meira en tveir metrar á hæð. Svo endaði þetta með því að ég var orðin voðalega góð vinkona þeirra og var með þeim í rútunni þeirra og þeir dældu í mig fötum og alls konar dóti. En þetta var auðvitað bara skemmtileg saga og hápunktarnir á Ólympíuleikunum voru önnur atriði, eins og að keppa og svo líka bara opnunarhátíðin sjálf. Við Sigfús Sigurðsson línumaður vorum bæði gráti næst þegar við löbbuðum um völlinn á opnunarhátíðinni. Svo var náttúrlega sturlað að vera á leikunum 2008 þegar Ísland vann silfrið í handboltanum.“

Fyrir nokkrum árum venti Ragga kvæði sínu í kross og setti allt sitt í leiklistina. Hún landaði einu af aðalhlutverkunum í sjónvarpsseríunni Vikings sem hefur farið um allan heim. Í þættinum ræða Ragnheiður og Sölvi um stórmerkilegan feril Röggu í sundinu og leiklistinni, mikilvægi þess að þora að elta ástríðurnar og margt margt fleira.

Þú getur hlustað á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál