Samkaup hlýtur Jafnvægisvogina 

Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, …
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála Samkaupa.

Félags kvenna í atvinnulífinu hefur veitt Samkaupum Jafnvægisvogina. Tilgangurinn með Jafnvægisvoginni er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi, að íslenskt atvinnulíf verði fyrirmynd jafnréttis og veita viðurkenningar og draga fram í sviðsljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar. Sökum COVID-19 faraldursins var viðurkenningin veitt rafrænt við hátíðlega athöfn. Launamunur samkvæmt endurúttekt á jafnlaunavottun er vart mælanlegur innan Samkaupa en keðjan rekur 61verslun með rúmlega 700 stöðugildi. 

„Við erum svo sannarlega stolt af þessari viðurkenningu. Samkaup hefur sett sér skýra stefnu í jafnréttismálum sem er órjúfanlegur hluti af heildarstefnu félagsins. Framkvæmdastjórn Samkaupa hefur skuldbundið sig í allri stefnumótun að stuðla að auknu jafnrétti. Starfsfólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, fötlunar, skoðana eða annarra þátta,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, forstöðumaður framkvæmdastjóri mannauðsmála Samkaupa.  

Starfsfólk Samkaupa er fjölbreyttur hópur sem vinnur út frá gildum fyrirtækisins og stefnu. Mikið er um starfsfólk í hlutastarfi en þar eru ungt fólk í námi stór hópur. Þá er einnig stór hópur sem hefur unnið lengi hjá fyrirtækinu en meðalstarfsaldur er í kringum 5 ár. Þá er talsvert af starfsfólki sem er komið á efri ár í starfi, en á þess kost að vinna lengur en til sjötugs ef það kýs það og er elsti starfsmaður Samkaupa kominn á níræðisaldur. Þegar heildarfjöldi stjórnenda er skoðaður út frá kynjahlutföllum er jafnvægi á milli kynja mjög gott með 48% karla og 52% konur. Stærsti hópur stjórnenda félagsins eru verslunarstjórar sem eru 62 talsins. Þegar litið er á kynjaskiptingu þar er jafnvægi gott með 47% karla og 53% konur. Þá hefur verið lögð áhersla á að fjölga sérstaklega konum í efsta stjórnendalagi félagsins og er í dag helmingur framkvæmdastjóra kvenkyns og forstjóri karlkyns, en til viðmiðunar var árið 2018 var engin kvenkyns stjórnandi í framkvæmdastjórn.  

Samkaup rekur Nettó verslanirnar.
Samkaup rekur Nettó verslanirnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál