Allt búið hjá Heiðari Loga og Ástrós

Heiðar Logi og Ástrós opinberuðu samband sitt í byrjun árs …
Heiðar Logi og Ástrós opinberuðu samband sitt í byrjun árs 2020. Skjáskot/Instagram

Brimbret­takapp­inn Heiðar Logi Elías­son og samkvæmisdans­ar­inn Ástrós Trausta­dótt­ir eru hætt saman. Fréttablaðið greinir frá sambandsslitunum. Parið fann ástina í lok síðasta árs og fagnaði árinu 2020 saman um síðustu áramót. 

Ástrós og Heiðar Logi eru hætt að fylgja hvort öðru á Instagram en bæði eru þau virk á samfélagsmiðlinum. Atvinnubrimbrettakappinn Heiðar Logi er með fjölda fylgjenda enda duglegur að birta ævintýralegar myndir af sér. Ástrós varð þekkt eftir þátttöku sína í þættinum Allir geta dansað á Stöð 2. Þar dansaði hún fyrst við hlaðvarpsstjörnuna Sölva Tryggva­son en í seinni þáttaröðinni var fótboltastjarnan Veigar Páll Gunnarsson dansfélagi hennar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál