Heppin að fá að upplifa glænýjan kafla í lífinu

Sigrún Pálsdóttir er að hefja nýjan kafla í lífi sínu.
Sigrún Pálsdóttir er að hefja nýjan kafla í lífi sínu. mbl.is/Árni Sæberg

Sigrún Pálsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Póstmerkt, er mikil áhugamanneskja um kökuskreytingar og bakstur. Hún er með tvö lítil börn og segir fátt skemmtilegra en að undirbúa jólin með börnunum. 

Sigrún varð verulega fær í bakstri þegar hún æfði sig í fæðingarorlofum sínum með börnunum tveimur. Hún er einnig mikið fyrir hreyfingu og stundar bardagaíþróttir hjá MMA RVK og æfir einnig blak með Aftureldingu.

„Ég legg mikið upp úr því að hafa einfaldleikann í fyrirrúmi og vil meina að allir geta bakað og skreytt. Ég held úti síðunni Kökur og Kupkakes á Instagram, þar sem mig langar til þess að sýna fólki að þetta þarf ekki að vera flókið til þess að vera fallegt og gott. Einfaldleikinn er oftast bara bestur. Draumurinn minn er að gefa út bók þar sem ég get sýnt fólki einfaldar og fallegar kökuskreytingar og sniðugar hugmyndir til þess að gera fallegar veislur á einfaldan hátt.“

Er á tímamótum í lífinu

Sigrún er á tímamótum í lífi sínu núna, þar sem hún er nýlega skilin, er að hefja nýja vinnu og fara í nýtt húsnæði.

„Ég er að hefja alveg nýjan kafla í mínu lífi sem ég hlakka til að njóta. Lífið er svo magnað, maður veit aldrei hvað það hefur upp á að bjóða. Mig finnst ég vera mjög heppin að fá svona glænýjan kafla og ný tækifæri.“

Sigrún hlakkar til jólanna og þá sér í lagi að baka smákökur sem hún gerir árlega.

„Ég baka mikið um jólin, aðallega smákökur. Ég hlakka til komandi tíma því nú er stelpan mín komin á þann aldur að hún getur farið að aðstoða mig og átta sig almennilega á jólunum.

Við fjölskyldan erum mjög vanaföst þegar kemur að jólunum. Við erum alltaf með hamborgarhrygg og því verður ekki breytt. Það er líka barist um að narta í hann kaldan daginn eftir.“

Gerir kökur sem eru listaverk

Það sem Sigrún kann að meta er að baka með börnunum um jólin.

„Krakkarnir getað bakað með okkur, skorið út og skreytt. Ég kann að meta að baka, en einnig að skreyta kökurnar. Ég teikna mikið og fannst svo geggjað að sjá eitthvað svona fallega skreytt sem væri líka gott verða til. Ég er einnig mikið fyrir að gleðja fólk og koma því á óvart. Ég geri það með því að mæta með fallega köku til þeirra eða með því að halda óvæntar veislur. Ef það eru veislur í kringum mig þá er ég komin með puttana í þær til að hjálpa til við skipulag og mæti með köku. Það er ótrúlegt hvað ein kaka getur gert mikið og líka fyrir borðhaldið.“

Þegar kemur að bakstri mælir Sigrún með að fylgja uppskriftum.

„Bakstur er ekki eins og eldamennskan þar sem þú getur sett smávegis af þessu og hinu í matinn. Einnig er gott að hafa hlutina ekki flókna, því það er ekki endilega betra. Ég ráðlegg fólki bara að vera öruggt með það sem verið er að gera. Að halda áfram að æfa sig og prófa sig áfram. Það verður ekkert flókið ef maður lærir að tileinka sér það.“

Á afmæli á jólunum

Sigrún hefur alltaf verið mikið jólabarn í gegnum tíðina.

„Ég er algjört jólabarn og á einnig afmæli 29. desember svo þið getið rétt ímyndað ykkur gleðisprengjuna í desember. Það var mikið bakað þegar ég var ung og lék amma stórt hlutverk í því og gerir í dag. Ég fer ennþá til hennar að baka fyrir jólin. Þá kemur litla jólastelpan upp í mér.“

Sigrún segir skipta miklu máli að hafa jólin eins róleg og notaleg og hægt er.

„Ef það þýðir að maður þarf að undirbúa þau fyrr þá gerir maður það. Ég mæli sem dæmi með að kaupa gjafirnar jafnt og þétt yfir árið svo maður fái ekki einn stóran skell í desember.

Það er alltaf hægt að finna leið ef viljinn er fyrir hendi og með réttu hugarfari kemst maður langt. Það sem mér finnst yndislegast við jólin er tíminn með fjölskyldunni. Stemningin þegar allir mæta, fínir og léttir í skapi. Þar sem við borðum saman, spilum og spjöllum. Jólin eru ómetanlegur tími.

Það er bara eitthvað við jólin sem fyllir mann af kærleik og gleði. Það er svo notalegt þegar það er dimmt úti, veðrið er stillt og þú ert inni að baka og hlusta á jólalög. Það er bara eitthvað svo yndislegt við það.“

Litlu jólin með vinkonunum mikilvæg

Eitt af því sem hún gerir alltaf á jólunum eru litlu jólin með vinkonunum.

„Við vinkonurnar erum búnar að halda litlu jólin saman undanfarin ár. Þar sem allar mæta með einn pakka og svo er dregið um pakkana. Við föndrum einnig saman og skreytum og fáum okkur smart drykki. Stundum verður ekki mikið úr verki því við gleymum okkur í góðu spjalli sem er gaman líka.“

Sigrún lumar á góðum uppskriftum. Hún heldur upp á t.d. kaffi-Toblerone-ís, kardimommumúffur og toppa.

Uppskriftir Sigrúnar

Kaffi -Toblerone -ís 6 eggjarauður

6 matskeiðar flórsykur

1 teskeið vanilludropar

1 matskeið kaffi

2 matskeið Kahlua -líkjör

500 ml rjómi (stífþeyttur)

100 grömm Toblerone

Aðferð

Hrærið eggjarauður ásamt flórsykri vel saman.

Bætið vanilludropum, kaffi og Kahlua-líkjör við.

Blandið rjóma varlega saman við.

Skerið Toblerone í litla bita og bætið við.

Kornflexbitar

(egglaus uppskrift)

150 grömm suðusúkkulaði

150 grömm rjómasúkkulaði

1 matskeið síróp

1 matskeið smjör

150 grömm kornflex

Aðferð

Bræðið súkkulaði og smjörið saman og blandið sírópi við og hrærið saman við súkkulaðið.

Blandið svo kornflögunum saman við áður en súkkulaðið harðnar.

Mótið strax áður en súkkulaðið harðnar.

Kardimommumúffur

200 grömm smjörlíki

2 bollar sykur

500 gr. hveiti

2 teskeiðar lyftiduft

3 dl mjólk

1 teskeið kardimommudropar

Aðferð

Bræðið smjörlíkið

Blandið öllu saman og hrærið vel

Setjið í muffins-form

Bakið við 170°C í 15-17 mínútur

Smjörkrem

250 grömm smjör við stofuhita

250 grömm flórsykur

2 teskeiðar vanilludropar

Aðferð

Hrærið smjörið vel og bætið flórsykrinum í skömmtum út í og síðan eru vanilludroparnir settir út í.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál