Leyfir sér að fara aðeins yfir strikið um jólin

Lucie Samcova segir að íslensk jól séu frábrugðin þeim jólum …
Lucie Samcova segir að íslensk jól séu frábrugðin þeim jólum sem hún er alin upp við.

Lucie Samcova fæddist í Prag í Tékklandi en hefur starfað að mestu í Belgíu og Sviss. Hún kom til landsins í sumar með börnunum sínum tveimur og segist elska veru sína á Íslandi. Eiginmaður hennar, Oliver Hall Allen, starfar einnig sem diplómat og skiptir tímanum sínum á milli Reykjavíkur og Brussel.

„Hátíðisdagar á nýjum stað eru alltaf einstakir og frábær leið til að kynnast landi og þjóð. Þegar hægist um í vinnu hefur fólk tilhneigingu til að opna sig meira og við höfum meiri tíma fyrir samtöl og samveru. Ég hlakka mikið til þess að læra meira um íslenska menningu og hefðir og sjá þær með eigin augum. Strákarnir mínir tveir eru líka orðnir spenntir að fá gjafir frá ekki bara einum heldur þrettán jólasveinum!“

Lucie segir jólin mikilvægustu hátíðisdagana í Tékklandi.

„Jólin eru því minn uppáhaldstími. Á meðan á þessu tímabili stendur verður andrúmsloftið meira töfrandi með hverjum deginum sem líður og nær hámarki 24. desember þegar fjölskyldur safnast saman yfir stórum kvöldverði, ásamt því að margir fara í kirkju og syngja jólasálma. Tékknesk börn trúa á Jezisek. Jesúbarnið sem skilur eftir gjafir handa þeim undir jólatrénu. Það sem heillar mig mest við Jezisek er að það er engin ákveðin lýsing á honum. Enginn veit hvernig hann lítur út svo ímyndunarafl barnanna fær algert frelsi.“

Með hverjum verðið þið á jólunum?

„Þar sem við eigum ættingja út um alla Evrópu ferðumst við oft mikið um jólin. Þetta ár verður öðruvísi, rólegra en venjulega – sem er líklega af hinu góða! Ég verð á Íslandi með eiginmanni mínum og börnum, en fer í stutt skíðafrí til Sviss. Við erum öll miklir aðdáendur vetraríþrótta og elskum að vera úti, sama hversu kalt er.“

Hver er fyrsta minning þín frá jólunum?

„Tékkar borða venjulega vatnakarpa, sem er ferskvatnsfiskur, um jólin. Þú kaupir fiskinn úti í búð þar sem hann er aflífaður og pakkaður fyrir þig. Sem barni fannst mér þetta allt of ofbeldisfullt. Ég fékk því foreldra mína til að kaupa fiskinn, en í stað þess að drepa hann slepptum við honum aftur í ána. Ég man ekki eftir gjöfunum sem ég fékk það árið en ég man tilfinninguna um að ég hefði gert eitthvað gott.“

Muntu skreyta heima hjá þér á jólunum?

„Heldur betur. Ég verð með fullt af ljósum og skrauti. Ég er yfirleitt nokkuð hófsöm þegar kemur að tísku og hönnun, en um jólin gleymum við okkur og leyfum okkur að fara aðeins yfir strikið. Tékkland er þekkt fyrir glervöru sína allt frá miðöldum. Ég á safn af gömlu jólaskrauti úr gleri sem ég hef erft frá foreldrum mínum og ömmu og afa. Skrautið fylgir mér hvert sem ég fer. Við höfum búið á fjórum mismunandi stöðum síðustu sjö árin og því skiptir miklu máli að hafa ákveðnar hefðir sem fylgja okkur.“

Lumar þú á góðri jólauppskrift?

„Þú verður að spyrja manninn minn að þessu. Hann er kokkurinn í fjölskyldunni og frábær sem slíkur!“

Hvað ætlarðu að gera á nýju ári?

„Mig langar að ferðast um Ísland eins mikið og ég get. Kórónuveirufaraldurinn setti starf mitt svolítið á hvolf, eins og hjá flestum. Þegar diplómatar koma í nýtt land viljum við hitta sem flesta, byggja upp tengslanet og kynnast landinu út og inn. Ég hef því miður þurft að halda aftur af öllu slíku þar sem við reynum öll að sýna ábyrgð og takmarka útbreiðslu vírussins, en ég vonast til að komast í þessi verkefni sem fyrst. Ég er alveg heilluð af Íslandi. Þetta er land er alveg einstakt. Ég elska náttúruna og er sérstaklega áhugasöm um Íslendinga, sem mér finnst vera afskaplega raunsætt og beinskeytt fólk, og með magnaða kímnigáfu!“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál