Borðaði úr ruslatunnum á Spáni

Sölvi Tryggvason og Halli Hansen. Myndin var tekin 2013.
Sölvi Tryggvason og Halli Hansen. Myndin var tekin 2013. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Halli Hansen er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Hann fer í þættinum meðal annars yfir það þegar hann bjó allslaus í yfirgefnu munkaklaustri á Spáni og þurfti í fyrsta sinn að borða upp úr ruslatunnu til að svelta ekki.

„Ég átti ekki neinn pening og var hústökumaður í yfirgefnu klaustri á Suður Spáni. Ég var búinn að vera án matar lengi þegar ég varð að gera eitthvað. Þá fór ég yfir það í huganum hvort ég væri maður sem myndi ræna fólk, en fann að það samræmdist ekki gildum mínum. Ég vildi ekki stela eða betla og komst að því að til að taka ábyrgð á sjálfum mér yrði ég líklega að borða upp úr ruslatunnu. Ég man vel þegar ég gekk að fyrstu tunnunni, lyktin sem gaus upp og flugurnar í kring og ég endaði á að labba í burtu og lagði ekki í það. Daginn eftir gerði ég aðra tilraun og guggnaði aftur og það var ekki fyrr en ég  hugsaði um allt fólkið sem borðar og lifir á ruslahaugum alla ævi úti um allan heim að ég áttaði mig á því að ég væri ekki betri en mínir minnstu bræður og systur. Það gaf mér styrkinn til að brjóta odd af oflæti mínu og týna myglað brauð upp úr ruslinu og borða það svo loksins. Það var ógeðslegt, en eftir að þetta skref hafði verið stigið var ég ánægður með að hafa gert þetta.”

Halli segir að það hafi nánast verið eins og lífið hafi vakað yfir sér eftir að hann ákvað að taka þetta skref.

„Þetta var svona „me vs life“ augnablik, en í framhaldi af þessu var eins og það væri einhver að vaka yfir mér. Þá gerðist það ítrekað að ég var kannski að labba í einhverjum garði og þá sá ég poka með eins dags gömlu brauði eða öðru sem gat dugað mér sem fæða í nokkra daga. Ég upplifði þetta eins og ákveðinn hjall sem ég varð að fara yfir og það gerðist eitthvað í kjölfarið. Við eigum öll persónulegt samband við lífið sjálft og gerðist eitthvað í mínu sambandi við lífið.“

Halli hefur undanfarin ár unnið við ferðaþjónustu og í kvikmyndagerð hérlendis og kvartar ekki þó að árið 2020 hafi verið erfitt í þessum geirum vegna faraldursins. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi, hvað framtíðin ber í skauti sér og margt fleira.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál