Í fangelsi 18 ára fyrir að hafa verið með hund í Öskjuhlíð

Fjölnir Bragason er gestur Sölva Tryggvasonar.
Fjölnir Bragason er gestur Sölva Tryggvasonar.

Fjölnir Bragason, eða Fjölnir Tattoo, þekktasti húðflúrari Íslands er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Fjölnir hefur séð margt á sínum langa ferli sem húðflúrari og segir alls kyns sögur af því í þættinum.

„Þegar ég segist hafa séð blóð, svita og tár, þá er ég að tala um alvörublóð, svita og tár. Og fólk segir manni allt þegar það situr í stólnum, þannig að ég hef séð ótrúlegan þverskurð af íslensku samfélagi í gegnum árin. Og oft hefur maður horft upp á sorglega hluti og ótrúlegar sögur. Ég man mjög vel eftir einum manni sem kom til mín og vildi risastóran dreka sem myndi fara yfir öxlina, niður bakið, utan á lærið og enda á ristinni. Þetta verk tók vel á annað ár og ég kynntist manninum vel á meðan. Í þriðja síðasta „sessioninu“ segir hann mér að hann sé farinn að stunda sjósund og í næsta skipti sagði hann mér að honum finnist gott að skella sér í sjóinn eftir að hafa drukkið til að losna við þynnkuna. Ég sagði honum að hann mætti alls ekki fara einn í sjóinn fullur og yrði að hætta því. Svo var eitt „session“ eftir til að klára húðflúrið þegar ég sé frétt um að maður hafi farist í Breiðafirðinum eftir að hafa farið í sjóinn klukkan 11 á laugardagskvöldi. Maður hefur upplifað alls konar svona hluti sem sitja stundum í manni.“

Fjölnir hefur í gegnum tíðina unnið langa vinnudaga og húðflúrað ótal manns og hann hefur tekið tímabil þar sem greiðslurnar voru ekki bara peningar. 

„Ég man þegar ég fékk í fyrsta skipti greitt fyrir húðflúr með hljóðfæri. Mér fannst það svo geggjað að ég lét það spyrjast út að ég væri að skipta á hljóðfærum fyrir að gera tattoo og það byrjaði að rigna inn. Ég átti mest meira en 40 gítara á tímabili. Ég var með sérvegg á stofunni bara fyrir SG Gibson. Ég var með trompet, klarínett og allan andskotann. Svo komu Brain Police, Mínus og fleiri hljómsveitir til mín á nóttunni og ég var bara að tattúvera og svo voru haldnir tónleikar með græjunum á veggjunum.“

Fjölnir segir í þættinum líka ótrúlega sögu af því þegar hann endaði í fangelsi fyrir hundahald eftir að hafa fundið látinn mann í Öskjuhlíðinni og látið lögreglu vita.

„Ég var á göngu í Öskjuhlíðinni að æfa hundinn minn sem var ekki nema hálfs árs labrador-hvolpur. Það var nýfallinn snjór yfir öllu klukkan átta um kvöld í miðjum febrúar. Stjörnubjart og kolniðamyrkur og allt í einu fann hundurinn einhverja lykt og tók á rás alla leið niður að staðnum þar sem veitingahúsið Nauthóll er núna. Þar aðeins fyrir ofan í trjánum var hundurinn búinn að skríða undir trjárunna og ég elti sporin þar til ég kom að rjóðri. Þar sá ég tvær lappir standa út hjá trjánum. Svo sé ég að þar lá maður með kókflösku í annarri hendi og tómt pilluglas í hinni og hundurinn var búinn að sleikja framan ur honum hrímið og ég sá fyrst ekki hvort hann var lifandi eða dauður, en eftir að ég skoðaði augun á honum sá ég að hann var látinn og ég man hvað ég fann mikið til með honum. Hann hafði augljóslega svipt sig lífi og ég man hvað ég fann mikið til með honum.“

Fjölnir, sem var aðeins 18 ára gamall fór heim til sín og ætlaði ekki að segja neinum frá því sem hann hafði fundið. Sérstaklega af því að lögreglan hafði í undanfaranum verið að fylgjast með honum á gangi með hundinn og hundahald var ekki leyft á þeim tíma.

„Það voru náttúrulega hundaspor hjá líkinu og ég man að ég ætlaði ekki að segja neitt þegar ég kom heim. En mamma sá strax að það var eitthvað að þegar ég kom heim og náði að toga það upp úr mér eins og mömmur gera. Hún hringdi í lögregluna sem kom og sótti mig og fór með mér að Öskjuhlíðinni og ég sýndi þeim hvar hundurinn hafði fundið manninn. Þá komst ég að því að lögreglan hafði verið að leita að honum í nokkra daga og þakkaði mér fyrir að spara þeim að þurfa að halda leitinni áfram. Þeir sögðu við mig að hundahald væri bannað en að ég fengi nú undanþágu af því að ég hafði fundið manninn. En svo fékk ég sektarboð skömmu seinna.“

Sektin hljóðaði upp á sex þúsund krónur, en honum var gefinn 2.000 króna afsláttur vegna ungs aldurs. Fjölnir settist niður með pabba sínum og ákvað í kjölfarið að sitja frekar af sér skuldina í fangelsi en að borga hana.

„Ég fór yfir tímakaupið sem ég var með á þessum tíma og komst að því að það væri miklu betra fyrir mig að sitja bara inni í þessa viku. Ég fékk svo kvaðningu og stakk henni í vasann áður en ég labbaði niður á Skólavörðustíg til að fara í fangelsið. Ég hringdi í Hundaræktarfélagið áður en ég fór til að láta þá vita og hvort það væri hægt að líta eftir hundinum mínum á meðan ég sæti inni. Svo labbaði ég frá Hlíðunum og þegar ég kom á Skólavörðustíginn var formaður Hundaræktarfélagsins mættur og fullt af fjölmiðlafólki og það lá við slagsmálum, það voru svo mikil læti. Svo mæti ég til fangvarðarins, sem spurði mig hvort ég væri með kvaðningu og ég fór að leita að henni og fann hana ekki. „Þá kemur þú ekki hér inn,“ sagði þá vörðurinn en síðan fann ég kvaðninguna í rassvasanum og endaði á að fara inn í fangelsið.“

Áður en Fjölnir fór inn hafði DV birt frétt um hvað til stæði. Þegar hún birtist bauðst Guðmundur Óskarsson, fisksali í Sæbjörgu, til þess að greiða sektina. Hann sagði að fangelsið gæti tekið hana af 30 þúsund króna skuld fangelsisins við hann. Eftir þrjá daga var Fjölnir laus úr fangelsinu:

„Þá var mér hent út og þá var Hundaræktarfélagið búið að stofna sjóð fyrir mig til að standa straum af vinnutapinu, þannig að ég hafði þreföld vikulaun upp úr þessu. Svo voru tekin við mig viðtöl af fjölmiðlum í Frakklandi og Þýskalandi, enda er það líka kolruglað að fangelsa barn fyrir að hafa verið úti með hund og hjálpa lögreglunni. Á þessum tíma áttu Davíð Oddsson borgarstjóri og Albert Guðmundsson fjármálaráðherra hunda og það birtust oft myndir af þeim með hundunum sínum. Og þetta mál kom mikilli hreyfingu á það að hundahald var loksins leyft í Reykjavík. Þó að ég eigi ekki einn heiðurinn að því, held ég að ég geti fullyrt að þetta mál hafði mikil áhrif.“

Fjölnir segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi í þjóðfélaginu í mörg ár eftir þennan atburð. Ókunnugt fólk stöðvaði hann úti á götu til að þakka honum fyrir að standa á sínu.

Í þættinum ræða Sölvi og Fjölnir um magnað lífshlaup Fjölnis, ótrúlegar sögur, þróun og sögu húðflúra og margt margt fleira.  

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál