Upplifði magnaða frelsistilfinningu við að hætta í fótbolta

Þegar Rúrik Gíslason fékk sig laus­an frá þýska liðinu Sand­hausen í fyrra lagði hann skóna þar með á hilluna. Í viðtali við Loga Bergmann Eiðsson, í næsta þætti af Með Loga, fer hann yfir þennan viðskilnað við liðið sem var harkalegur en á endanum hárrétt ákvörðun.

„Ég fann þessa frelsistilfinningu um leið og ég var laus undan samningi,“ segir Rúrik.

Frelsið hefur hann nýtt vel eins og farið er yfir í þættinum en næstu skref verða á dansgólfinu þar sem hann mun keppa í þýska dansþættinum Let's Dance. Þeir þættir eru byggðir á bresku þáttunum Dancing with the Stars, sem haldnir eru um heim allan.

Eins og allir vita öðlaðist Rúrik heimsfrægð fyrir tæpum þremur árum þegar Ísland lék á HM í Rússlandi en frá árinu 2005 hefur hann verið atvinnumaður í knattspyrnu, fyrst með Charlt­on á Englandi, Vi­borg, OB og FC Kaup­manna­höfn í Dan­mörku og loks Nürn­berg og Sand­hausen í Þýskalandi. Þá hef­ur hann leikið 53 lands­leiki og skorað í þeim þrjú mörk. 

Þátturinn Með Loga er framleiddur af Skot Productions og kemur í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál