Hágrét yfir þyngdinni þegar hún var níu ára

Erna Kristín Stefánsdóttir er gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans.
Erna Kristín Stefánsdóttir er gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans. Skjaskot/YouTube

Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna, sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Erna Kristín fer yfir sögu sína í þættinum og talar meðal annars um átröskun, sem byrjaði snemma. 

„Ég var eiginlega með neikvæða líkamsímynd frá því að ég uppgötvaði að ég væri með líkama. Sem er auðvitað mjög sorglegt. Eitt sterkasta augnablikið var þegar ég var níu ára og var að fara að keppa á fimleikamóti og fór inn á baðherbergi og öskurgrét af því að ég mátti ekki vera í stuttbuxum yfir fimleikabolnum. Þarna var þetta byrjað, en það að hugsa svona níu ára er náttúrlega mjög óeðlilegt. Ég man að strax í fyrsta bekk var ég oft að hlaupa hring í kringum blokkina til að reyna að léttast. Þá er ég bara sex eða sjö ára og þar er þetta strax byrjað. Hjá mér held ég að þetta tengist áfalli sem ég varð fyrir, sem getur sett átröskun af stað. En svo er alltaf spurning hversu stór vandinn verður. Hjá mér var ég föst í vítahring alveg þar til ég fékk ofsakvíðakast eftir að ég var orðin fullorðin og náði þá loks að byrja fyrir alvöru vegferðina að bata,“ segir Erna og heldur áfram: 

„Um fermingu vildi ég bara klippa magann af. Ég man eftir því að hafa hugsað það mjög mikið. Hvort það væri ekki bara hægt að klippa hann af. Þarna er komin mjög sterk hugmynd um að skaða mig og ég var mjög föst í að hugsa um að klippa mig með skærum. En það var alveg sama hvað ég svelti mig mikið, útlimirnir og aðrir hlutar líkamans grenntust alltaf á undan maganum. Það skipti engu máli þó að ég væri frekar grannur krakki og unglingur. Þetta elti mig í gegnum alla æskuna og unglingsárin … Ef ég ætlaði að komast heilan dag í viðbót án þess að borða horfði ég bara á Victorias Secret-módelin og fann myndbönd af þeim til að finna kraftinn til að sleppa því að borða. En það var síðan eftir að mér var nauðgað sem átröskunin byrjaði fyrir alvöru og þá fór ég inn í langt tímabil af búlimíu, þar sem ég skilaði matnum aftur upp úr mér alla daga. Átröskun er í grunninn leið til að skaða sig frá vondum tilfinningum og það gerðist þarna. Ég fór líka í mjög mikla ofþjálfun og æfði lengi vel 11 sinnum í viku og ef eitthvað fór ofan í mig þá fór það aftur upp.“ 

Eitt af því sem hjálpaði Ernu út úr vítahring átröskunar var að verða ólétt. 

„Ég var löngu hætt á blæðingum og fattaði þess vegna ekki að ég væri ólétt fyrr en ég var komin þrjá mánuði á leið. Það hvarflaði ekki að mér að ég gæti orðið ólétt, en þegar það gerðist fór lífið að snúast um annað en bara mig. Það að átta mig á því að ég yrði að halda þessu kríli í lagi fékk mig til að byrja að borða aftur og byrjaði að laga átröskunina. En svo fór ég yfir í tímabil þar sem ég borðaði allt of mikið og ofbauð líkamanum aðeins í þá átt, vegna þess að líkaminn hafði verið svo lengi í svelti að hann öskraði stanslaust á mat. Það tók mig því talsverðan tíma að finna jafnvægið og læra að hlusta á líkamann en í dag er þetta komið á eðlilegt ról.“

Erna vinnur mikið með börnum og unglingum og ræðir oft við þau um samfélagsmiðla og gildrurnar þar, sem hún þekkir sjálf af eigin raun. 

„Samfélagsmiðlarnir geta verið rosalegir og ég þekki það sjálf að missa sig í þeim. Ég var að fara yfir þetta og ég er búin að fara í gegnum milljón myndbönd á TikTok. Það er hægt að sjá það í forritinu. Ég skammast mín fyrir að segja þetta. Í fullu háskólanámi, með barn og fleira.“

Í þættinum fara Sölvi og Erna yfir sögu Ernu, kosti og galla samfélagsmiðla og margt margt fleira.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og horfa á hann á YouTube: 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál