Glúmur Baldvinsson sem hefur lengi þótt einn eftirsóttasti piparsveinn landsins og Lína Rut Vilberg listamaður eru nýtt par. Glúmur greindi frá því á facebooksíðu sinni að loksins hefði hann fundið konu sem móður hans hugnaðist. Konu sem gæti séð um hann.
„Ég var óvart svo heppinn að kona vildi mig. Þrátt fyrir mótbárur femínistaflokksins. Lína og ég Mamma heimtaði alltaf konu sem gæti tekið við af henni og séð um mig frá a til ö. Svo mömmu varð loks að ósk sinni,“ segir Glúmur á Facebook.
Hann er þarna að vísa í móður sína, Bryndísi Schram, en hann er sonur hjónanna Bryndísar og Jóns Baldvins Hannibalssonar.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ástina!