Katrín Tanja borðar pylsu í fyrsta sinn í 17 ár

Það hlýtur sennilega engin titilinn Hraustasta kona í heimi ef hún er alltaf að gúffa í sig pylsu með öllu. Um það hefur Katrín Tanja Davíðsdóttir sjálfsagt verið meðvituð og þess vegna ákveðið að einbeita sér að annarri tegund af fæðu. 

Loga Bergmann halda hins vegar engin slík bönd og þess vegna ákveður hann, eins og ekkert sé eðlilegra, að renna í næstu lúgusjoppu og bjóða þessum nýjasta gesti sínum upp á eina með öllu. 

Í þessu broti úr þættinum sjást viðbrögð Katrínar Tönju við fyrsta pylsubitanum í sautján ár. 

Þess ber að geta að þessi unga og ofurhrausta kona hefur ekki skipt um lífsstíl, þrátt fyrir freistingar Loga, og keppir enn að því alla daga að verða best í heimi í crossfit, einu sinni enn. Að minnsta kosti.  

Katrín Tanja er næsti gestur Með Loga. Þátturinn kemur í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudag og er einnig sýndur í opinni dagskrá kl. 20.00 sama dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál