„Það á að vera gaman að halda veislur“

Lára Margrét ásamt dóttur sinni Særúnu Sigurjónsdóttur.
Lára Margrét ásamt dóttur sinni Særúnu Sigurjónsdóttur. mbl.is/Árni Sæberg

Lára Margrét Traustadóttir hefur alltaf haft brennandi áhuga á öllu sem viðkemur skreytingum. Hvort sem það er fyrir veislur eða á heimilinu.

„Ég býð upp á mikið úrval af leiguvörum fyrir fermingar og má þar nefna nammibari, makkarónu-standa, súpupotta, blómavasa, kertastjaka, blóm og margt fleira. Einnig tek ég að mér að skreyta fyrir fermingar og önnur tilefni.“

Lára Margrét ákvað að fara út í þessa þjónustu þar sem hún hefur mikinn áhuga á skreytingum.

„Ég var búin að vera að gera þetta fyrir vini og vandamenn í mörg ár áður en ég tók þessa ákvörðun. Hugsunin með leigunni er sú að það sé hægt að fá leigða hluti í stað þess að þurfa að kaupa allt.“

Umhverfisvænt að leigja hlutina

Hún segir óþarfi að geyma hluti í geymslum sem sjaldan eru notaðir.

„Það er mun umhverfisvænna að leigja hluti og skila aftur heldur en að kaupa allt nýtt. Hugsunin var líka að reyna að létta eins mikið á fólki sem er að fara að halda veislur því eins og margir vita þá er fullt af fólki sem miklar þetta fyrir sér og þá getur verið gott að fá einhvern til að hjálpa sér. Ég er frekar mikil veislukona og finnst mjög gaman að halda veislur á einfaldan, fallegan og þægilegan hátt. Mér finnst mjög gaman að fá að vera með puttana í veisluhöldum hjá fólkinu í kringum mig, fjölskyldu og vinum.“

Láru Margréti finnst mikilvægt við fermingar að leyfa fermingarbarninu að taka eins mikinn þátt og hægt er.

„Að leyfa fermingarbarninu að ákveða hvaða veitingar verða og hvaða litaþema og skreytingar það vill. Að sjálfsögðu allt innan skynsamlegra marka. Það er mikilvægt að mikla þetta ekki of mikið fyrir sér og njóta veislunnar. Það eru allt of margir sem ætla sér um of og eru svo alveg sprungnir þegar kemur að deginum sjálfum og ná ekki að njóta hans.“

Það er umhverfisvænt að leigja aðföng fyrir veisluna að mati …
Það er umhverfisvænt að leigja aðföng fyrir veisluna að mati Láru Margrétar. mbl.is/Árni Sæberg

Skreytingar gera mikið fyrir veisluna

Hún segir skemmtilegt að velja matinn í samræmi við litaþemað.

„Svo þarf oft ekki nema smá blóm eða seríur til að setja punktinn yfir i-ið.“

Lára Margrét segir markmiðið með þjónustu hennar vera að auðvelda hlutina fyrir fólki sem er að fara að halda veislur.

„Ég byrja alltaf á því að hitta viðkomandi og fara yfir hvaða óskir þau eru með og hvernig þau vilja hafa veisluna. Síðan mæti ég á staðinn með mitt fólk skreyti og kem svo aftur og tek allt mitt dót saman. Ég er sérlega heppin með aðstoðarfólkið mitt að þetta gengur alltaf eins og vel smurð vél. Allt sem fólk fær leigt hjá mér þríf ég sjálf, þannig er enginn óþarfa frágangur áður en skilað er til baka. Ég passa líka alltaf að afhenda leiguvörurnar frá mér á miðvikudegi fyrir helgina og svo er þeim skilað eftir helgi. Mitt mottó er: Ekkert óþarfa stress, því það á að vera gaman að halda veislur.“

Mikilvægt er að velja mat og góðgæti sem fermingarbörnin vilja …
Mikilvægt er að velja mat og góðgæti sem fermingarbörnin vilja borða. mbl.is/Árni Sæberg
Ljós geta gert mikið fyrir veisluborðið.
Ljós geta gert mikið fyrir veisluborðið. mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál