Lamaðist eftir 12 metra fall og þurfti að díla við það

Pétur Kristján Guðmundsson.
Pétur Kristján Guðmundsson. mbl.is/Ásdís

Pétur Kristján Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Pétur, sem var mikill útivistargarpur, lamaðist í slysi í Austurríki fyrir 10 árum. Hann neitaði að gefast upp, þrátt fyrir að læknar segðu honum að hann myndi aldrei geta staðið upp aftur. Stóra áfallið hjá Pétri var ekki slysið sjálft, heldur þegar hann áttaði sig á því 2-3 árum síðar að hann hefði verið í harkalegri afneitun:

„Ég gjörsamlega hrundi og var fullkomlega „dysfunctional” í heilt ár eftir að ég áttaði mig á stöðunni. Ég sökk í eins djúpt þunglyndi og það gerist og var farinn að skoða „Suicidal-Clinic“ í Sviss, sem eru stofnanir þar sem fólk getur ákveðið sjálft að enda líf sitt af því að þjáningin er orðin of mikil.“

Pétur var í Austurríki á nýársnótt og fór með fólki í strætó upp fjall sem er við borgina Innsbruck til að horfa á flugeldana ofan frá. Þegar tími var kominn til að fara til baka var strætisvagninn fullur af fólki og Pétur fékk vin sinn til að labba með sér niður í staðinn:

„Hann reyndi að stoppa mig, af því að við vissum ekki hversu löng leiðin væri niður eða hversu bratt það væri, en ég hlustaði ekki. Maður var búinn að vera þarna á snjóbretti í mörg ár og það gerðist aldrei neitt, þannig að manni leið eins og maður væri óbrjótanlegur. Það var frost og mið nótt og snjór yfir öllu. Við löbbuðum inn í skóg og ég var á undan honum og ég hoppaði í átt að tré sem var þarna, en missti af því og byrjaði að rúlla stjórnlaust niður brekkuna. En ég var vanur því á snjóbrettinu, þannig að ég man að ég hugsaði á meðan ég rúllaði niður brekkuna að þetta væri nú ekkert stórmál, en svo var 12 metra klettur þarna fyrir neðan. Ég skaust fram af honum og lenti á skógarvegi þar fyrir neðan. Næsta sem ég vissi var að ég lá á maganum og ætlaði að standa upp og halda áfram, en þá var bara búið að slíta líkamann í sundur og lappirnar virkuðu ekki. Þrátt fyrir þetta var ég ekki enn að kveikja og fannst það tóm vitleysa hjá vini mínum að hringja á björgunarsveitirnar. Ég var alveg aftengdur veruleikanum,“ segir Pétur og heldur áfram:

„Ég lá í fjóra klukkutíma þarna á veginum af því að það var svo erfitt að komast að þessu. Líkamshitinn var kominn niður í 31 gráðu og ef ég hefði verið þarna í klukkutíma í viðbót hefði ég frosið til dauða. Ég var líka með blæðingu inn á heila og samfallin lungu. Síðan man ég eftir að ég var sprautaður niður og ég opnaði svo augun í herbergi með kremlitaða veggi og læknirinn kemur inn og segir mér að hann hafi framkvæmt á mér aðgerð sem hafi tekið átta klukkutíma og að ég muni aldrei ganga aftur. Hann sagði þetta bara við mig kalt og beint. En jafnvel þó að læknirinn hafi sagt þetta við mig neitaði ég bara að trúa þessu. Ég var handviss um að ég myndi ganga aftur. Þetta augnablik var ekki nærri jafnerfitt eins og þegar ég áttaði mig á því tveimur árum síðar að ég væri búinn að vera í afneitun allan þennan tíma. Þá var ég búinn að vera í þrotlausum æfingum marga klukkutíma á dag alla daga, en áttaði mig á því að ég væri ekki að meðtaka raunveruleikann.“

Eftir margra ára sjálfsvinnu er Pétur nú kominn á stað þar sem hann vinnur við að hjálpa öðru fólki. Eitt af því sem hefur hjálpað honum hve mest er notkun á hugvíkkandi efnum, einkum psilociben, virka efninu í sveppum:

„Þessi efni hafa verið notuð í þúsundir ára víða um heim. Það sem gerðist hjá mér eftir að ég byrjaði að vinna með þessi efni var að ég fór að víkka út veruleikann og sjá hlutina með öðrum augum. Það hjálpaði mér að byrja að eiga við raunveruleikann og sætta mig við stöðuna. Ég áttaði mig á því að ég gæti ekki komist framhjá mænuskaðanum sem ég hafði orðið fyrir og neyddist til að horfast í augu við veruleikann í stað þess að flýja hann. Ég endaði á að flytja í sumarbústað á afskekktum stað og vann með þessi efni heilan vetur. Það var mjög erfitt ferli, en ég endurfæddist í raun.“

Upp frá þessum vetri byrjaði Pétur að leiða aðra í gegnum reynslu með hugvíkkandi efni:

„Þessi efni geta auðveldlega verið hættuleg ef þau eru notuð í röngum aðstæðum. Ef þú ert í partíi og veist ekki hvað þú ert að gera getur það gerst mjög hratt að þetta snúist upp í andhverfu sína. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að gera þetta í réttum aðstæðum undir handleiðslu.“

Í þættinum ræða Sölvi og Pétur um slysið, listina við að gefast ekki upp, hugvíkkandi efni og margt fleira.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og horfa á YouTube: 


 

Pétur Kristján Guðmundsson árið 2014.
Pétur Kristján Guðmundsson árið 2014. mbl.is/Ernir Eyjólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál