„Þannig byrjaði martröðin“

Helena Jónsdóttir prýðir forsíðu Vikunnar.
Helena Jónsdóttir prýðir forsíðu Vikunnar. Ljósmynd/Sarah Blee

Dans- og kvikmyndagerðarkonan Helena Jónsdóttir missti eiginmann sinn, Þorvald Þorsteinsson, árið 2013 og sorgarferlið hefur verið langt og strangt. Hún prýðir forsíðu Vikunnar þar sem hún ræðir opinskátt um missinn.

Helena segir að þau Þorvaldur hafi vitað hvort af öðru, hann hafi meðal annars sagt henni að hann hafi dáðst að henni í listinni löngu áður en þau kynntust í lok níunda áratugarins. Blaðamaður spyr hvort það hafi verið ást við fyrstu sýn. „Já, sagði hann,“ segir Helena og hlær létt. Hún segir þau hafa verið mjög náin, helst saman öllum stundum og deilt ástríðu sinni fyrir listinni á hverjum degi.

Helena og Þorvaldur fluttu til Antwerpen árið 2011 og höfðu búið þar í um það bil eitt og hálft ár þegar Þorvaldur lést í febrúar 2013. Helena var við vinnu á Íslandi þegar kallið kom.

„Einhvern veginn gerðist ekkert hjá okkur fyrr en við vorum búin að deila því með hvort öðru,“ segir hún. „Ef við vorum ekki í sama landi þá nýttum við okkur símalínuna, oft mörgum sinnum á dag. Ég hafði verið að hringja í hann þetta laugardagskvöld, 23. febrúar, en hann ekki svarað sem var mjög skrýtið. Ég hringdi í góðan vin okkar, Arthur, sem var að vinna á kaffihúsi sem er á torginu við húsið okkar í Antwerpen, og bað hann um að athuga hvort hann sæi kveikt ljós í íbúðinni okkar. Hann kíkti og sagði að það væri ljós í stofunni, þannig að ég vissi að Þorvaldur væri heima. Vinur okkar hringdi dyrabjöllunni en Þorvaldur kom ekki til dyra. Ég hringdi þá í vinkonu okkar sem geymdi fyrir okkur varalykil og bað hana og Arthur um að fara og athuga hvort það væri ekki örugglega allt í lagi. Það leið og beið og mig grunaði að eitthvað væri að. Svo hringdi Arthur og spurði hvort ég væri ein eða með einhverjum sem ég treysti … Þannig byrjaði martröðin.“

Helena stendur fyrir Physical Cinema hreyfimyndahátíð sem fer af stað um helgina í miðbæ Reykjavíkur. Þar sem vídeóverkum verður varpað víðs vegar um bæinn dagana 10.-17. apríl til að hreyfa við og gleðja gangandi vegfarendur.

Þess má geta að heimildamynd um Helenu og Þorvald, Er ást, var frumsýnd nýlega í Bíó Paradís og er nú sýnd á netinu í Heimabíó Paradís eftir að hertar samkomutakmarkanir tóku gildi. Myndin er tilnefnd til tvennra Edduverðlauna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál