Hverjir mæta í jarðarförina?

Guðný Ósk Laxdal skrifaði lokaritgerð um bresku konungsfjölskylduna.
Guðný Ósk Laxdal skrifaði lokaritgerð um bresku konungsfjölskylduna. mb.is/Eggert Jóhannesson

„Fyrirkomulag jarðarfarar Filippusar prins var gert opinbert síðastliðinn laugardag. Allt skipulag var þó tilbúið fyrir löngu, en vegna Covid þurfti að laga skipulagið að núverandi sóttvarnareglum í Bretlandi. Filippus sjálfur kom mikið að skipulagi sinnar eigin jarðarfarar, en má þá helst nefna líkbílinn sem mun flytja hann í St. George-kapelluna í Windsor. Er það sérstakur Land Rover sem Filippus hjálpaði til við að hanna fyrir jarðarförina,“ segir Guðný Ósk Laxdal, sérfræðingur í bresku konungsfjölskyldunni, í nýjum pistli á Smartlandi: 

Jarðarförin mun fara fram laugardaginn 17. apríl kl. 15 (kl. 14 að íslenskum tíma). Almenningi verður meinaður aðgangur vegna Covid, en sýnt verður beint frá athöfninni. Athöfnin mun byrja á einnar mínútu þögn um allt Bretland. Áður en athöfnin hefst munu börn hans og barnabörn ganga á eftir líkbílnum, allir nema Elísabet sjálf. Filippus mun verða færður til hvíldar í konunglegu hvelfingunni í St. George-kapellunni, sem er sama kapella og Harry og Meghan giftu sig í, og Eugenie og Jack Brooksbank. 

Samkvæmt núgildandi sóttvarnareglum mega 30 koma saman í Bretlandi í jarðarförum. Hefur verið gefið út að öll börn hans og barnabörn muni verða viðstödd, ásamt mökum. Að undanskilinni hertogaynjunni af Sussex, en hún fékk ekki leyfi hjá lækni til að ferðast. Hún á von á barni í sumar og býr í Bandaríkjunum. Harry fer því án konu sinnar í jarðarförina og fer í sóttkví fyrir laugardaginn, þar sem um er að ræða jarðarför fær hann undantekningu og getur farið í 5 daga sóttkví en ekki 10 daga. 

Ásamt nánustu fjölskyldu er ekki von á að neitt af barnabarnabörnunum verði viðstödd þar sem mörg þeirra eru mjög ung. Boris Johnson hefur tilkynnt að hann muni ekki mæta til að fleiri ættingjar geti verið viðstaddir. 

Gestalistinn er ekki staðfestur en búist er við að hann muni líta svona út:

  • Elísabet drottning
  • Karl prins og Kamilla kona hans
  • Andrew prins 
  • Edward prins og Sophie (jarlinn og greifynjan af Wessex)
  • Anna krónprinsessa og Sir Timothy, eiginmaður hennar
  • Vilhjálmur og Katrín, hertogahjónin af Cambridge
  • Harry prins
  • Eugenie prinsessa og Jack Brooksbank
  • Beatrice prinsessa og Edo Mapelli Mossi, eiginmaður hennar
  • Louise og James, börn Edwards
  • Zara og Mike Tindall, dóttir Önnu og eiginmaður hennar
  • Peter Phillips, sonur Önnu.
  • David, jarlinn af Snowdon, sonur Margrétar prinsessu.
  • Sarah Chatto, dóttir Margrétar prinsessu.

Einnig munu frændsystkini Elísabetar verða viðstödd en það eru: 

  • Hertogahjónin af Gloucester
  • Hertogahjónin af Kent
  • Prins Michael af Kent og kona hans
  • Alexandra prinsessa

Samtals telur þetta 29 gesti, en ásamt þessum ættingjum mun einkaritari Filippusar einnig verða viðstaddur athöfnina en það er Brigadier Archie Miller-Bakewell. Er þá talan komin upp í 30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál