„Annaðhvort hættir þú að drekka vinur eða ég skil við þig“

Tómas A. Tómasson, eigandi Hamborgarabúllunnar.
Tómas A. Tómasson, eigandi Hamborgarabúllunnar. Ljósmynd/Aðsend

Tómas Andrés Tómasson er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Tómas, sem er betur þekktur sem Tommi á Búllunni, er fyrir löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Í þættinum segir Tommi meðal annars frá því þegar hann smakkaði hamborgara í fyrsta sinn:

„Ég fékk minn fyrsta hamborgara í Ísborg, sem var svona lítil búlla niðri í Austurstræti. Ég var 14 ára gamall og ég man að það var bara eins og himnarnir opnuðust. Og franskar kartöflur, ég hafði aldrei smakkað annað eins og þetta var ást við fyrstu smökkun.“

Þó að Tommi hafi í gegnum tíðina afrekað ótrúlega hluti var leiðin alls ekki alltaf slétt og felld og Tommi segist hafa verið nálægt því að glata öllum sínum tækifærum vegna drykkju:

„Ég byrjaði mjög snemma að drekka, þegar ég var 13 ára gamall og þá opnuðust himnarnir eina ferðina enn. Ég drakk alltaf til að vera fullur og það fór mér illa að drekka. En ég fór að læra kokkinn og maður komst upp með að drekka þar. Ég hætti svo, en byrjaði aftur og þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum átti ég erfitt með að fá vinnu af því að það hafði spurst út að ég væri drykkfelldur. En ég hætti ekki, en var svo heppinn að þáverandi konan mín sagði við mig á einhverjum punkti: 

„Annaðhvort hættir þú að drekka vinur eða ég skil við þig.“

Það er engin lygi að mig langaði mest að skilja við hana og halda áfram að drekka, en ég vildi ekki tapa „djobbinu“, þannig að ég tók mig til og drakk ekkert í þrjú ár og það var dásamlegur tími. Þessi ár, sem voru í Grindavík, voru á margan hátt mín skemmtilegustu og bestu ár.“

Tommi hefur verið samofinn íslenskri matarmenningu í nærri 50 ár, eða allt frá því hann seldi meira en 300 þúsund hamborgara á einu ári eftir stofnun Tommaborgara.

„Ég innréttaði 12 fermetra skrifstofu og þar bjuggum við Helga, þáverandi konan mín, í átta mánuði. Á næturnar var þetta svefnherbergið okkar, en á daginn skrifstofa. Þegar við opnuðum Tommaborgara 1981 kostaði Tommaborgari án osts 22 krónur, en með osti 25 krónur. Frönskurnar kostuðu 6 krónur og gosið 4,6 eða 8 krónur eftir því hvað glasið var stórt. Þegar við opnuðum man ég að fólki fannst þetta frekar ódýrt og þetta gekk lygilega vel. Á fimm vikum var ég kominn í að selja þúsund hamborgara á dag og staðurinn borgaði sig niður á þremur mánuðum. Staðurinn tók ekki marga og fólk beið stundum meira en klukkutíma bara til að taka með sér tvo hamborgara heim. Það var eins og fólk hefði aldrei fengið mat áður og við seldum 352 þúsund hamborgara fyrsta árið eftir að við opnuðum.“

Tommi hafði rekið Hard Rock Cafe, Hótel Borg og marga fleiri staði þegar hann hugðist fara að setjast í helgan stein upp úr aldamótum, en áttaði sig fljótt á því að staðan væri ekki alveg nógu góð:

„Ég seldi Borgina 2001 og hélt ég gæti borgað skuldir mínar og átt afgang og farið að hugsa til þess að verða „grand old man“, en ég skuldaði meira en ég hélt og átti minna en ég átti von á og var miklu blankari en ég hélt. Ég notaði alltaf tvo eyrnapinna eftir sturtu á morgnana, en ég var orðinn svo blankur þarna að ég tímdi bara að nota einn. En það sem vakti mig til lífsins var þegar ég þurfti að kaupa fyrirframgreitt símakort árið 2003. Ég þurfti að fara inn á þrjá bankareikninga til að skrapa saman 500 kall. Þá áttaði ég mig á því að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum. Þetta var í raun upphafið að því að ég stofnaði Búlluna. Þetta var þvílíkt sjokk og niðurlæging. Að Tommi á Hard Rock og Borginni ætti ekki einu sinni 500 kall til að setja inn á símann sinn. En þegar hugmyndin kom um að fara aftur að steikja hamborgara fannst mér það nánast niðurlægjandi. Það var tímabil sem átti að vera búið. En svo fór fólk að tala um það að Tommi væri aftur að byrja með hamborgarastað og smám saman sá ég að það gæti verið besti kosturinn í stöðunni.“

Eins og þekkt er orðið gekk Hamborgarabúllan strax mjög vel og áður en langt um leið var búið að opna Búlluna í London og þar varð fljótt mikið að gera líka.

„Einn daginn sáum við það svo að David Beckham var mættur á staðinn til að fá sér hamborgara. Hann var bara í úlpu með sixpensara og strákinn sinn með sér og allt í einu tekur einhver eftir því að hann er þarna og það er fólk sem biður um myndir af sér með honum og þá eigum við myndir af honum inni á staðnum og svo kom hann nokkrum sinnum eftir þetta. Svo opnuðum við á King´s Road og ég veit ekki hvernig á því stóð að þau hjónin leigðu þann stað tvisvar sinnum til að halda afmælisveislu fyrir börnin sín. Þau voru bara þarna eins og hjón úr Breiðholtinu að passa barnaskarann. Við sögðum engum frá þessu, en þetta spurðist út. Og ég segi það núna að ég hefði frekar viljað fá Beckham í heimsókn á staðinn heldur en Bretaprins. Það er öllum vel við Beckham úti um allan heim og allir vilja tengjast honum.“

Tommi er í mjög góðu líkamlegu formi og hefur æft mjög reglulega í 40 ár. Hann þakkar Bubba Morthens fyrir það.

„Þegar ég fór á Rokk-„showið“ á Broadway 1981 og sá Bubba beran að ofan varð vendipunktur. Hann hljóp um sviðið allur skorinn og vöðvastæltur. Ég fer heim, á þeim tíma þegar ég bjó á skrifstofunni á Tommaborgurum og horfði í spegilinn og mig langaði að fara að gráta. Ég var svo illa á mig kominn. Þarna byrjaði ég að æfa. Skömmu síðar var ég kominn til Kaliforníu og þá æfði ég í Gold´s Gym eftir Pumping Iron með Arnold Schwarzenegger. Ég hef æft mjög reglulega alveg síðan. Ef Bubbi hefði ekki verið þarna ber að ofan hefði ég ekki fengið þessa bakteríu og ég hef oft þakkað Bubba fyrir að ég hafi haldið mér í góðu formi í öll þessi ár.“

Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurum yfir í eignarhald á Hard Rock, Búllunni í London og ótal fleiri hluti.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og horfa á hann á YouTube:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál