Sigmar Vilhjálmsson alsæll með nýjasta samninginn

Sigmar Vilhjálmsson er alsæll með samninginn við Samkaup.
Sigmar Vilhjálmsson er alsæll með samninginn við Samkaup. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samkaup og Barion hafa gert með sér samning um opnun á Barion-stað í Krambúðinni á Laugarvatni. Um er að ræða minni útgáfu af Barion-hverfisstað þar sem mest seldu réttir Barion verða á boðstólum.  

„Við hjá Samkaupum höfum verið að vinna í endurbótum á veitingasölu okkar um allt land. Samstarf okkar við Barion og Hlöllabáta hefur gengið vel og því var það rökrétt að leita til þeirra með endurbætur á veitingasölu félagsins. Við rekum veitingastaði víða um land og opnun Barion á Laugarvatni er tilraun okkar í að innleiða aukin gæði á okkar stöðum og koma með nýjan og spennandi matseðil,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa.  

„Það er okkur mikill heiður að Samkaup skuli vilja vinna þetta verkefni með okkur. Ég lít á það sem mikla viðurkenningu fyrir starfsfólk okkar og Barion-vörumerkið. Metnaður Samkaupa í að auka gæðin á sínum veitingastöðum er mikill og rímar alveg við þann metnað sem við höfum lagt upp með á okkar stöðum. Sem landsbyggðarmaður þá veit ég að eftirspurn eftir nýjum og spennandi hlutum er mikil, svo ekki sé talað um innlenda og erlenda ferðamenn sem kallað hafa eftir meiri fjölbreytni á ferð sinni um landið,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Hlöllabáta og Barion. 

Matseðillinn verður minni en á stóru Barion-stöðunum en ástæðan fyrir því er fyrst og fremst að tryggja ferskleika og gæði. Matseðill Barion Laugarvatni mun samanstanda af vinsælustu og söluhæstu réttum Barion.  

„Á Laugarvatni er ansi hátt hlutfall af fastaviðskiptavinum sem nýta sér okkar þjónustu. Sumarbústaðabyggðirnar, ferðamenn, íbúar og starfsmenn sem þjónusta fyrirtæki í nágrenninu. Fyrir nokkru gerðum við könnun meðal þessara viðskiptavina og sá matseðill sem við ætlum að bjóða upp á á að mæta þeim væntingum sem settar voru fram. Það er trú okkar að þessum breytingum verði fagnað af þeim sem og ferðamönnum sem fara þarna um í tugþúsunda tali á hverju sumri,“ segir Haukur Benediktsson rekstrarstjóri Krambúða.  

Framkvæmdir eru þegar hafnar á staðnum og stefnt er að opnun Barion Laugarvatni snemma sumars.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál