Saga segir sig frá máli Sölva

Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður hefur sagt sig frá máli fjölmiðlamannsins …
Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður hefur sagt sig frá máli fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar vegna hagsmunaárekstra. Samsett mynd

Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður hefur sagt sig frá máli fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar vegna hagsmunaárekstra.

Í tilkynningu sem Saga sendi frá sér í dag segir hún að hún hafi tekið að sér afmarkað mál fyrir hans hönd á sunnudag fyrir viku. Á fimmtudag í síðustu viku hafi hún svo fengið símtal þar sem henni var tilkynnt að önnur kvennanna sem kærðu Sölva á miðvikudagskvöld er einn umbjóðenda hennar í hópmálsókn sem hefur verið í gangi í nokkur ár og er enn í rekstri fyrir dómstólum. 

„Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum,“ segir Saga í tilkynningunni. 

Tvær konur stigu fram á miðvikudag í síðustu viku og sökuðu Sölva um að hafa beitt sig ofbeldi. Hann hafði tveimur dögum áður stigið fram og sagst vera saklaus af sögusögnum sem höfðu verið á kreiki helgina áður.

Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður fer með mál kvennanna tveggja. Hún sagði við mbl.is í gær að hún gerði ráð fyrir að Sölvi yrði boðaður í skýrslutöku á næstu vikum

„Svo lengi lærir sem lifir og hefur undanfarin vika verið mér mjög lærdómsrík. Ég hef áttað mig á að ég fór út fyrir verksvið mitt sem lögmaður, lét tilleiðast og kom mér í aðstæður sem ég geri mér núna grein fyrir að ég hefði aldrei átt að vera í. Eftir að hafa horft á margumrætt podcast sem fór í loftið í síðustu viku er fátt annað í brjósti mér en að ég átta mig á að orð mín þar hafa sært einstaklinga og á því langar mig að biðja einlæglega afsökunar. Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu,“ segir Saga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál