„Var tilbúin að breyta til og elta ástina“

Edda Pétursdóttir.
Edda Pétursdóttir.

Edda Pétursdóttir býr í Berlín í Þýskalandi; í Mitte, sem er líkt og nafnið ber með sér miðja Berlínar og eitt aðalhverfið þar sem steinsteyptar götur, heillandi hús og gömul kirkja setja svip á umhverfið.

„Ég var svo heppin að vera í ljósmyndanámi þegar kórónuveiran skall á svo ég kláraði það og fór svo að vinna sem ljósmyndari. Sú vinna er háð takmörkunum vegna veirunnar en maður reynir að finna taktinn í því eftir því sem veiran leyfir.“

Edda á von á dóttur hinn 23. maí næstkomandi með manni sínum Moritz Reiner. Þau hafa verið saman frá árinu 2017 þegar þau kynntust á tískuvikunni í London. Þau voru í fjarbúð í eitt ár þar til þau fluttu til Berlínar saman fyrir fjórum árum.

„Þegar við fluttum hingað fyrst lagði ég mikið upp úr því að fara að gera eitthvað strax, þá helst til að kynnast fólki.

Moritz vinnur fyrir fyrirtæki sem heitir WeWork sem eru skrifstofur fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hann var fluttur frá London til Berlínar til að opna WeWork á þýska markaðnum, sem er ástæða þess að við fluttum hingað.

Ég var búin að eiga góðan og langan feril sem fyrirsæta í New York í um 15 ár og var tilbúin að breyta til og elta ástina.

Ég sótti um hjá Neue Schule für Fotografie í eins árs alþjóðlegt nám sem var mjög gefandi og skemmtilegt nám.

Þar kynntist ég góðum vinkonum sem ég vinn mikið með í dag. Eftir það tók ég önn í BTK-háskólanum en áttaði mig á því að sá skóli væri ekki fyrir mig og vildi frekar prófa mig áfram sjálf. Ég var einnig að taka að mér verkefni í New York og Boston þar sem ég átti föst verkefni sem fyrirsæta. Það var heldur mikið að vera í fullu háskólanámi og ferðast tíu til fimmtán daga á mánuði frá Berlín til New York.

Ég er með reynslu úr tískuheiminum sem spannar tæp tuttugu ár og því fannst mér ég þekkja hann það vel sjálf að ég ákvað að finna mínar leiðir í honum.

Þá kom kórónuveiran og lífið sem við þekkjum breyttist.

Viðskiptavinir mínir í Bandaríkjunum hættu að bóka mig og mér fannst fyrirsætuverkefnin hér í Þýskalandi ekki nógu spennandi þannig að ég ákvað að demba mér í ljósmyndaverkefni.“

Alltaf farið sínar eigin leiðir í lífinu

Edda hefur alltaf farið sínar eigin leiðir í lífinu.

„Ég vann í hugmyndunum mínum og setti saman teymi og bjó til söguþætti sem ég sendi á tímarit á borð við Schön Magazine, Lula Japan og Latest magazine. Þetta er leiðin sem ég hef farið til að byggja upp möppuna mína og hafa eitthvað í höndunum til að sýna viðskiptavinum mínum.

Út frá þessu var ég til dæmis ráðin til að gera „look-book“ fyrir Galvan London sem var svo birt hjá Vogue. Einnig hef ég verið að vinna mikið með skartgripi. Viðskiptavinir mínir hafa verið OUVERTURE og International Citizen.“

View this post on Instagram

A post shared by Edda Petursdottir (@by_edda)

Edda er viss um að hún hefði ekki farið áfram með vinnuna sína á þennan hátt ef ástandið hefði verið öðruvísi.

„Ég hefði ekki kýlt á þetta af svona mikilli alvöru nema vegna þess að heimurinn stóð í stað og ég missti af þessum fyrirsætuverkefnum í Bandaríkjunum. Öryggið var farið og ekkert annað í boði en að demba sér í næstu áskorun.“

Íbúðin þeirra í Berlín er einstaklega falleg.

„Það er dásamlegt að vera svona miðsvæðis í Berlín. Við búum við aðalverslunargötuna sem minnir mig svolítið á Soho í New York nema hér er miklu minni umferð að sjálfsögðu. Við Moritz búum í nýrri byggingu sem okkur líkar mjög vel, en þar sem við eigum von á barni erum við í þeim hugleiðingum að stækka við okkur. Húsnæðismarkaðurinn hér er þannig að íbúðir hafa hækkað mjög mikið í verði á undanförnum árum svo það er ekki auðvelt að finna draumaíbúðina eins og er.“

Edda er vön að vera á faraldsfæti vegna vinnunnar.

„Það mun ýmislegt breytast þegar barnið fæðist. Ég var vön í svo mörg ár að hoppa upp í vél hvar sem er í heiminum í alls konar fyrirsætuverkefni, oft með einungis eins dags fyrirvara, en þar sem ég hef verið að byggja upp verkefni í kringum mig með föstum viðskiptavinum síðastliðin ár verður þetta ekki svo slæmt. Það sem ég þarf að gera er að finna mér góða barnapíu þegar ég tek að mér verkefnin þangað til dóttir mín fer á leikskóla.“

Kórónuveiran hefur haft meiri áhrif á líf Eddu en meðgangan sem segir ýmislegt um aðstæðurnar í Þýskalandi í dag.

„Mér fannst þetta alveg tilvalinn tími til að verða ólétt. Það er allt enn þá lokað hér í Berlín. Við erum búin að vera í „lockdown“ síðan í nóvember í fyrra. Hér er ekki einu sinni hægt að setjast inn á kaffihús þannig að við erum voða mikið heima hjá okkur nema þegar ég er að vinna ljósmyndaverkefnin mín. Ég er með sirka eitt verkefni á viku og þess á milli er ég að undirbúa myndatökuna og í eftirvinnslu á ljósmyndunum.“

Það er meira krefjandi að vera á bak við myndavélina að mati Eddu.

„Það er einnig meira gefandi. Mér finnst einstaklega gaman að hafa yfirsýn yfir tökur og vera listrænn stjórnandi sjálf. Að koma með hugmynd og sjá hana verða að veruleika er alveg einstaklega skemmtilegt.

Ég tek eitt og eitt fyrirsætuverkefni ennþá og þegar heimurinn opnast aftur getur vel verið að ég taki fleiri verkefni í New York og annars staðar sem fyrirsæta af og til. Fókusinn er á ljósmyndaverkefnin núna og móðurhlutverkið.“

Kolféllu hvort fyrir öðru

Edda er félagsvera í eðli sínu og segir mikilvægt að eiga góða vini að.

„Í Berlín vinn ég mikið með vinum og hef fundið vinkonur úr ljósmyndaskólanum sem eru mjög uppbyggjandi. Við erum fimm vinkonur og draumurinn okkar er að setja upp ljósmyndastúdíó saman. Vinna verkefni saman, deila hugmyndum og hjálpa hver annarri að koma sér á framfæri.“

Hvað með ástina í lífinu?

„Ég kynntist manninum mínum á tískuvikunni í London árið 2017.

Ég var á þeim tíma „brand partner“ fyrir jógafyrirtækið Vyayama. Við höfðum verið valin áhugaverðustu nýliðarnir hjá Selfridges og var fatamerkið í glugganum á Oxford Street í nokkrar vikur. Það var viðburður í kringum þetta sem ID Magazine stóð fyrir og við vorum í þeim viðburði.

Ég fór svo í tískupartí það kvöld þar sem ég hitti Moritz í gegnum vinafólk. Við alveg kolféllum hvort fyrir öðru og vorum svo í fjarsambandi á milli London og New York í heilt ár þar til við fluttum saman til Berlínar.“

Jákvæðni besta fegrunarlyfið

Moritz bað Eddu á strönd í Kosta Ríka í febrúar 2020, rétt fyrir kórónuveiruna.

„Planið var að giftast á þessu ári en mig langar ekki að gifta mig með grímu svo við erum með fókusinn á barneignina núna.“

Fyrirsætuheimurinn hefur breyst mjög mikið frá því Edda byrjaði að vinna á sínum tíma.

„Breytingarnar eru til hins betra að mínu mati. Það er mikil áhersla lögð á að fyrirsætur séu með sinn eigin persónuleika. Það sem mér finnst best við iðnaðinn í dag er að við erum með meiri fjölbreytileika en þegar ég byrjaði árið 1998. Aldur er ekki eins mikið mál og áður. Þú getur verið 65 ára með grátt hár að gera flott verkefni.

Það sem er aðeins þreytandi er að nú þarftu að vera sýnileg á samfélagsmiðlum, sem getur verið þreytandi. Það eru tækifæri í því líka, sem dæmi að vera hluti af breytingum sem mann langar að sjá í heiminum.

Sem ljósmyndari hafa samfélagsmiðlar einnig hjálpað mér mjög mikið þar sem ég hef fundið áhugavert fólk að vinna með í gegnum þá, sem dæmi stílista, förðunarfræðinga og hárgreiðslufólk svo eitthvað sé nefnt.“

Hvað gerir þú til að viðhalda góðri heilsu og hraustlegu útliti?

„Ég hef stundað jóga og hugleiðslu í 17 ár. Svo borða ég einstaklega hollan mat og hef gert það í mörg ár. Svefn er mér einnig mjög mikilvægur.“

Áttu leyniráð að deila með okkur til að viðhalda fallegu útliti með árunum?

„Já, það er að sofa vel, stunda jóga og drekka mikið af vatni. Ég mæli einnig með sellerísafa og Feel Iceland-kollageni sem hefur hjálpað mér mikið. Svo má ekki gleyma því að jákvæðni er eitt besta fegrunarmeðalið.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál