Unnsteinn Manuel fluttur til Þýskalands og les fyrir Storytel

Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Unnsteinn Manuel er mættur á Storytel en hann les bókina Silfurfossar eftir Einar Leif Nielsen. Unnsteinn er staddur í Þýskalandi og flutti þangað í miðri kórónuveiru. Þar lærir hann handritaskrif fyrir sjónvarpsþætti í Þýska kvikmyndaskólanum.

Silfurfossar

Árið 2067 taka glæparannsóknir skamman tíma vegna tæknilegra framfara. Kári er nýliði í lögreglunni á Hvolsvelli og starfið er fremur tilbreytingarsnautt. Það breytist þegar hann gengur óvænt inn á vettvang morðs á býlinu Silfurfossum. Morðingjanum virðist hafa tekist að afmá stafræn fótspor sín. Hin gamalreynda Árný verður bandamaður Kára í rannsókninni og saman komast þau að því að ekki er allt sem sýnist, hvorki hjá heimilisfólki né hjá vélmennunum sem á býlinu starfa. Válynd veður loka þau af á Silfurfossum og Kári og Árný lenda í kapphlaupi í tímann við að leysa málið.

Silfurfossar er þriðja skáldsaga Einars Leifs Nielsen. Hann hefur áður gefið út Sýndarglæpi sem sigraði Eyrað, handritasamkeppni Storytel 2019, og Hvíta múra borgarinnar sem kom út 2013. Í Silfurfossum mætast klassísk morðgáta og vísindaskáldskapur á frumlegan og spennandi hátt. Atburðarásin kemur sífellt á óvart og fléttan heldur hlustendum á tánum allt til loka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál