Sú ákvörðun að hætta að drekka áfengi var hola í höggi

Davíð Örn Hákonarson veit hvað er best að eiga í …
Davíð Örn Hákonarson veit hvað er best að eiga í eldhúsinu.

Davíð Örn Hákonarson, matreiðslumeistari og sjónvarpsmaður, er veitingastjóri á Hótel Húsafelli. Hann veit fátt skemmtilegra en að gera góðan mat og trúir því að með fallegu eldhúsi verði maturinn betri. 

Hver er uppáhaldsréttur þinn á matseðlinum?

„Ætli það sé ekki gamli góði agúrkueftirrétturinn minn sem hefur fylgt mér lengi. Hann á sér sérstakan stað í hjarta mínu. Hann samanstendur af hvítsúkkulaði- og skyrkremi, sýrðum og ferskum agúrkum, dillolíu, stökkum marengs og granítu sem gerð er úr sellerí, romaine-salati, dilli og eplum. Hann er öðruvísi og þetta er svona „had to be there“-réttur. Hann er ekki á seðlinum í þessum töluðu orðum en hann kemur á seðil í byrjun júní með batnandi veðri.“

Agúrkueftirrétturinn hefur fylgt Davíð Erni lengi.
Agúrkueftirrétturinn hefur fylgt Davíð Erni lengi.

Hvað er það dýrasta sem þú hefur keypt þér í eldhúsið?

„Ætli það sé ekki Thermomixinn minn. Það er blandari [e. blender] með hitastýringu og tölvuskjá sem hefur endalausa möguleika. Það er hægt að hnoða brauðdeig, sjóða súpur og búa til eftirrétti án þess að nota potta eða pönnur. Ég elska þessa vél! Þetta er svona vél sem maður vissi ekki að maður þyrfti fyrr en maður fékk hana.“

Thermomixinn er blandari með hitastýringu og tölvuskjá sem gefur endalausa …
Thermomixinn er blandari með hitastýringu og tölvuskjá sem gefur endalausa möguleika þegar kemur að matseld.

En það ódýrasta?

„Það er örugglega litla sleikjan eða skrælarinn úr IKEA. Þessi áhöld klikka seint og eru til fyrirmyndar. Ég hef líka séð þessar IKEA-sleikjur í atvinnueldhúsum sem segir allt sem segja þarf. Ég er mikið fyrir að að eiga margt lítið sem er ekkert endilega dýrt og maður getur átt áhöld fyrir hvað sem er.“

Skrælarinn frá Ikea stendur alltaf fyrir sínu.
Skrælarinn frá Ikea stendur alltaf fyrir sínu.

Hvert er uppáhaldsveitingahúsið þitt?

„Það er erfitt að segja. Sú upplifun sem stendur mér þó efst í huga er þó þegar ég fór á Asador Extebarri á Spáni. Ég fór þangað þegar ég var að vinna á Arzak í San Sebastian á sínum tíma. Ég upplifði magnaða matarupplifun sem ég mun ekki gleyma. Ég mæli eindregið með því að fólk geri sér ferð þangað ef það á leið hjá.

Annars eru margir góðir staðir sem mér finnst gaman að heimsækja í Reykjavík. Ég vil ekki vera að nafngreina einhvern einn stað. En ég fer reglulega á þá staði sem mér þykir einna vænst um og líður vel á.“

Hvað gerir þú á góðum degi þegar þú vilt dekra við þig?

„Ég reyni að gera sem minnst! Hinn fullkomni dagur væri að vakna og drekka góðan espresso í rúminu við þægilega tónlist. Fara svo út með hundinn á eitthvert gott kaffihús og fá mér góðan hádegismat. Það verður að vera gott veður svo það komi fram.

Mér gæti líka dottið í hug að skella mér í nudd einhvers staðar eða hitta ættingja eða vini yfir daginn á meðan kærastan er í vinnunni. Svo væri yndislegt að fara út að borða einhvers staðar um kvöldið með konunni og hafa það náðugt. Ef það er ekki í boði þá er alltaf gott að fara í ferðalag upp í sveit eða bústað.“

Skiptir tíska þig miklu máli?

„Nei, hún skiptir mig í raun og veru kannski ekki máli en mér finnst tíska áhugaverð. Mér finnst gaman að eiga fallega hluti og fylgjast með hvað er inn og hvað ekki. Það sem er í tísku hverju sinni finnst mér ekki heilagt. Mér finnst gaman að fara stundum á móti straumnum og gera eitthvað sem aðrir þora ekki og allt gamalt og tímalaust er minn veikleiki. Hattar eru einnig áhugamál hjá mér. Þegar það kemur að húsgögnum þá elska ég gamla hönnun og að blanda henni saman við nýja.“

Hvað með andlega líðan og sjálfsvinnu?

„Ég ætti að vera að gera mikið meira af henni en hún gleymist oft í dagsins önn.

Ég hef það að leiðarljósi að koma vel fram við náungann og vera betri maður í dag en ég var í gær. Mér finnst mikilvægt að bæta fyrir brot sín á öðrum og vera heiðarlegur, traustur og trúr sjálfum sér. Ég stundaði mikla og ákafa sjálfsvinnu hérna fyrir nokkrum árum og maður hefur viðhaldið henni í gegnum árin með því að koma því í rútínu. Stundum þarf maður að horfast í augu við sjálfan sig og sjá hvað maður getur verið mikill fáviti á köflum og það er líklega eitt það erfiðasta sem fólk gerir. Mér finnst mikilvægt að vera meðvitaður um mína eigin galla og reyna að rétta mig af þegar brestirnir koma fram. Sama á við um að viðurkenna mistök sín umsvifalaust þegar maður brýtur á öðrum. Sama í hvaða formi það getur verið. Það er enginn fullkominn og það mun aldrei verða raunin en maður getur endalaust lært og reynt að bæta sig til hins betra, sýna umburðarlyndi og elska náungann.“

Japanskir hnífar eru í uppáhaldi hjá honum.
Japanskir hnífar eru í uppáhaldi hjá honum.

Hvað er það besta sem þú hefur gert fyrir sjálfan þig?

„Það er þrennt sem er mér efst í huga. Að búa erlendis kenndi mér mikið um umburðarlyndi og önnur samfélög. Það opnaði augu mín fyrir því hvað samfélög eru fjölbreytt og hvað þarfir íbúa eru ólíkar á milli landa og heimsálfa. Það fékk mig til að sjá sjálfan mig í nýju ljósi. Hundurinn minn var líka ein af mínum framúrskarandi ákvörðunum og hefur hann gefið lífinu lit á þeim myrku tímabilum sem lífið hefur boðið upp á. Svo held ég að sú ákvörðun að hætta að drekka áfengi hafi verið hola í höggi, braut eftir braut eftir braut. Það að geta hugsað skýrt og lifað frjáls úr hlekkjum fíknar og áfengis er tryllt eiturlyf. Það er komið í tísku núna að drekka ekki áfengi og það er ágætistíska sem er mannbætandi. Ég er ekki á móti áfengi, þvert á móti. Áfengi getur verið yndisleg uppfinning þegar hún er notuð rétt og í hófi. Vín og matur er fullkomin blanda sem aldrei má deyja.“

Er meira sjónvarpsefni á leiðinni frá þér?

„Já, heldur betur! Ég og minn maður Hannes Þór Arason, maðurinn sem mun láta mig líta vel út á skjánum, erum að fara í ferðalag út fyrir landsteinana um leið og aðstæður leyfa í stórt og skemmtilegt verkefni sem birtist vonandi á skjám landsmanna á þessu ári eða á því næsta. Við getum ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað við erum búnir að hnoða saman! Svo er maður alltaf með eitthvað nýtt í pípunum. Sumt hittir í mark og annað ekki.“

Glæsilegir pottar frá Pottery Barn.
Glæsilegir pottar frá Pottery Barn.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál