Storytel nú aðgengilegt í Apple Watch

Arnar Bentsson, viðskiptastjóri hjá Storytel.
Arnar Bentsson, viðskiptastjóri hjá Storytel.

Storytel appið er nú fáanlegt fyrir Apple Watch og fá notendur nú enn fleiri möguleika til að hlusta á sögur á ferðinni. Með nýja appinu fá hlustendur aukinn sveigjanleika til að hlusta á hljóðbækur, jafnvel þótt síminn sé skilinn eftir heima.

Storytel appið fyrir Apple Watch gerir hlustendum kleift að skilja iPhone símann sinn eftir heima og vera með uppáhaldssögurnar sínar á ferðinni. Hægt er að streyma bókinni beint af netinu eða hlaða henni niður, hlusta án nettengingar og njóta þess að hlusta hvort sem það er við hlaup, göngu eða aðra hreyfingu.

Með efni samstillt milli tækja geta notendur Storytel nú skipt óaðfinnanlega á milli símans og úrsins og haldið áfram að hlusta á hljóðbækur á ferðinni.

„Við hjá Storytel kappkostum að gera hlustun á hljóðbækur aðgengilega fyrir notendur okkar á sveigjanlegan hátt. Hlustendur geta nú sökkt sér ofan í spennandi sögur allan sólarhringinn í alls kyns hversdagslegum aðstæðum, þar á meðal þegar þeir eru á ferðinni með eingöngu Apple úrið sitt. Með þessu nýja aðgengi fá hlustendur aðgang að okkar stórbrotna bókasafni á enn einu tækinu og er það frábær leið til að samtvinna hreyfingu og hljóðbækur,” segir Arnar Bentsson, viðskiptastjóri hjá Storytel.

Storytel appið fyrir Apple Watch var aðgengilegt frá og með 28. júní, fyrir alla sem eru með Apple Watch Series 3 og seinni útgáfur með watchOS 7 stýrikerfið. Það þarf virka áskrift að Storytel til að nýta sér þjónustuna.

Storytel er nú aðgengilegt í snjallúrunum frá Apple.
Storytel er nú aðgengilegt í snjallúrunum frá Apple.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál