Gummi kíró tekjuhæstur áhrifavalda

Guðmundur Birkir Pálmason er tekjuhæstur áhrifavalda.
Guðmundur Birkir Pálmason er tekjuhæstur áhrifavalda. Skjáskot/Instagram

Kírópraktorinn og áhrifavaldurinn Guðmundur Birkir Pálmason er tekjuhæstur áhrifavalda, samfélagsmiðlastjarna og fólks í fréttum samkvæmt Tekjublaði DV sem kom út í dag. Er Guðmundur skráður með 1.221.368 krónur í mánaðartekjur að meðaltali á síðasta ári. 

Brimbrettakappinn og áhrifavaldurinn Heiðar Logi Elíasson var með mánaðartekjur upp á 1.070.533 krónur á síðasta ári og er næst tekjuhæstur í flokknum. 

Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og framkvæmdastjóri, var með rúmlega eina milljón á mánuði á síðasta ári. 

Fjórða á listanum er baráttukonan og félagsráðgjafinn Tara Margrét Vilhjálmsdóttir með skráðar tekur 972.556 á mánuði.  

Á listanum er einnig að finna Rúrik Gíslason, fyrrum fótboltakappa, en hann var með mánaðartekjur upp á 858 þúsund á síðasta ári. 

Lína Birgitta Sigurðardóttir, athafnakona og áhrifavaldur og kærasta Guðmunds Birkis, var með skráðar 413.720 krónur á mánuði. Camilla Rut Rúnarsdóttir, vinkona Línu og áhrifavaldur var með örlítið hærri tekjur, eða 424 þúsund á mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál