Ráðlagður dagskammtur af drama með Ernu Hrund

Fyrsti þáttur af Rósinni fer í loftið næstkomandi fimmtudag hjá …
Fyrsti þáttur af Rósinni fer í loftið næstkomandi fimmtudag hjá Sjónvarpi Símans Premium. Ljósmynd/Síminn

Erna Hrund Hermannsdóttir, áhrifavaldur stýrir nýjum þáttum sem aðgengilegir verða á Sjónvarpi Símans Premium í vetur. Þættirnir hafa fengið nafnið Rósin sem er tilvísun í aðal útgangspunkt Bachelorette þáttanna, þar sem þátttaka keppenda ræðst af því að fá tækifæri til að þiggja rós frá einhleypunni.

Rósin er eins konar samantektar þáttur á þeim uppákomum sem koma til með að eiga sér stað í Bandarísku Bachelorette þáttunum og mun Erna Hrund, ásamt góðum gestum, kryfja ástir og önnur átakamál til mergjar. 

„Síðasta sumar var ég með sambærilega þætti á vegum Símans í gegnum Instagram sem fengu frábærar viðtökur. Nú hefur verið ákveðið að taka stærra stökk og framleiða þættina sem sjónvarpsefni, ekki binda þá endilega við samfélagsmiðlana,“ segir Erna Hrund. Framleiðslufyrirtækið Ketchup framleiðir þættina en Erna Hrund verður í hlutverki þáttastjórnanda. 

Erna Hrund er ófrísk af sínu þriðja barni og hefur …
Erna Hrund er ófrísk af sínu þriðja barni og hefur þurft að skipuleggja sig vel meðfram þáttunum. Ljósmynd/Síminn

„Þetta eru svona „recap“ þættir sem teknir eru upp eftir hvern einasta þátt af Bachelorette út alla seríuna,“ segir Erna Hrund aðspurð um innihaldið. En til þess má geta að fyrsti þáttur nýrrar þáttaraðar af Bachelorette fór fram síðasta þriðjudag í Bandaríkjunum. 

Aðdáendur þáttanna geta vissulega glaðst yfir því að 18 þáttaröð Bachelorette sé farin af stað en Rósin er ekki síður mikið tilhlökkunarefni sem íslensk viðbót við þættina. „Bachelor og Bachelorette er náttúrulega eitt vinsælasta sjónvarpsefnið á landinu og hefur verið það í mörg ár. Landinn virðist hafa mikinn áhuga á Amerískri dramatík,“ segir Erna Hrund. „Bachelorette þættirnir eru yfirleitt sýndir á mánudögum eða miðvikudögum úti þannig við reynum að halda í við það og gefum út nýjan þátt af Rósinni hvern fimmtudag.“ 

Rósin kemur til með að afhjúpa ástir og örlög þeirra …
Rósin kemur til með að afhjúpa ástir og örlög þeirra sem eiga erindi við Bandarísku Bachelorette þættina. Ljósmynd/Síminn

Hefur horft frá upphafi

Erna Hrund viðurkennir að hún hafi alla tíð verið mikill aðdáandi þáttanna. Hún hafi einungis verið tólf ára gömul þegar hún horfði í fyrsta sinn á Bachelor. „Ég hef fylgst með þáttunum frá upphafi. Þegar það er ekki nógu mikið drama í þínu raunverulega lífi þá þarftu að sækja þinn skammt af drama einhvers staðar. Ég geri það með því að horfa á Bachelorette,“ segir Erna Hrund og hlær. „Það er svo skemmtilegt að sjá ólíka menningarheima mætast og horfa á öll þessi stefnumót. Þetta er svo ólíkt því sem við erum vön hér heima. Það er allt önnur date-menning í gangi hér. Að mínu mati er þetta líka bara ráðlagaður dagskammtur af smá drama inn í lífið.“

„Ég er alveg týpan sem er löngu búin að kortleggja það hvaða pör passa vel saman og allt þetta. Ég er nú þegar komin með minn topplista fyrir þessa seríu og hún fór fyrst af stað í gær. Ég get ekki beðið eftir því að fá að uppljóstra þeim skoðunum sem ég hef um þessi mál,“ segir hún og spennan leynir sér ekki. 

Mikið í húfi 

Erna Hrund gengur með sitt þriðja barn og er áætluð koma barnsins fljótlega eftir áramót. Hefur hún því þurft að skipuleggja tímann sinn vel samhliða vinnu og einkalífi ef ské kynni að barnið tæki upp á því að flýta sér í heiminn.

„Ég vil halda því fram að ég sé komin á steypirinn en ég er ekki sett fyrr en 4. janúar. Við höfum reynt að plana tökur á þáttunum meðfram dagskrá frá ABC, sem framleiða Bachelorette þættina, en þeir gefa aldrei upp alveg pottþétta dagskrá þannig við höfum verið að giska á hvenær lokaþátturinn verður sýndur miðað við reynslu fyrri ára. Ef ágiskun okkar gengur eftir þá verður lokaþátturinn sýndur 21. desember og þá ætti þetta allt að ganga upp. Ef ég missi vatnið og eignast barnið í miðjum tökum þá er það bara geggjað sjónvarpsefni. Ég hef engar áhyggjur af þessu, ég hlakka bara til,“ segir Erna Hrund.

Fyrsti þáttur af Rósinni kemur út í dag fimmtudag á Sjónvarpi Símans Premium. Gestir þáttarins verða þau Eva Ruza og Helgi Ómars en þau eru bæði dyggir aðdáendur sjónvarpsþáttaraðanna.

Erna Hrund umkringd dyggum Bachelorette aðdáendum, þeim Helga Ómars og …
Erna Hrund umkringd dyggum Bachelorette aðdáendum, þeim Helga Ómars og Evu Ruzu. Ljósmynd/Síminn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál