Gaf manninum sínum sömu jólagjöfina tvisvar

Ása Tryggvadóttir ásamt eiginmanni sínum.
Ása Tryggvadóttir ásamt eiginmanni sínum.

Ása Tryggvadóttir keramikhönnuður tekur hlutina ekki of alvarlega á jólunum. Hún reiknar með að vera á Spáni og gefa bóndanum fallega glænýja jólagjöf en ein jólin fékk hann sömu gjöfina í annað sinn. Hún hefur rekið verkstæði og gallerí í fallegu gömlu húsi við Vatnsstíg 3 síðastliðin sjö ár. Ása er þekkt fyrir hvannarstilkana sína úr hvítu postulíni sem eru vinsælir núna. Hún er orðin spennt fyrir jólunum þótt undirbúningurinn fyrir þau sé með öðru sniði en áður.

Hafa prófað að vera á Spáni um áramótin

„Við hjónin bjuggum á Raufarhöfn okkar fyrstu búskaparár með strákunum okkar þremur þar sem við sköpuðum okkar hefðir. Við vorum með rjúpur sem maðurinn minn veiddi en hvorugt okkar ólst upp við það. Á meðan hann eldaði rjúpurnar fór ég í messu. Ég var í sóknarnefnd þannig að ég fór auðvitað í kirkju. Ég hélt því svo áfram þegar við fluttum á Seltjarnarnesið og finnst það alltaf svo jólalegt.“

Hvernig verða jólin á þessu ári?

„Við ætlum að prófa að vera á Spáni, ef það verður í lagi vegna kórónuveirufaraldursins. Við höfum verið á Spáni um áramót og hefur það verið mjög gaman. Spánverjar eru mjög hressir um jól og áramót. Við borðuðum á huggulegum veitingastað á gamlárskvöld, sem var fallega skreyttur, við fengum alls konar grímur og flautur, svo var brjálað stuð hjá hljómsveitinni, dansað og hlegið.“

Ása er ekkert sérstaklega mikil jólakona í dag að eigin sögn en hefur gaman af því að gera fínt í kringum sig á jólunum.

„Ég kann að meta að leggja fallega á borð og skreyta smávegis. Það er samt alltaf að minnka áhuginn fyrir að skreyta. Ég vil einfalda jólaskrautið, helst hafa allt í einum kassa í geymslunni.“

Hún er þó sannfærð um að fallegar gjafir gleðji á jólunum.

„Það er alltaf gaman að fá fallegan pakka. Innihaldið þarf ekki að vera stórvægilegt, en það er mest gaman að nota óhefðbundinn pappír og skraut.“

Með fastar hefðir sem hafa skapast í gegnum árin

Það sem Ása gerir alltaf fyrir jólin er að steikja laufabrauð.

„Þegar við gerum laufabrauð, þá kemur systir mín og hennar fjölskylda og við skerum út og steikjum, höfum síld og smökkum hangikjöt. Það eru eins konar litlu jól. Það er eins alltaf gerður sérríís fyrir jólin, þar sem notast er við gamla uppskrift frá mömmu. Ísinn elskum við öll.“

Ása er löngu hætt að baka og segir hún engan á heimilinu sakna þess.

„Við erum lítið fyrir kökur, en ég kaupi alltaf pavlovur sem Oddfellowkonur baka og selja á basar fyrir jólin. Það er einstaklega gott að setja ber og rjóma á þær.“

Hvað dreymir þig um í jólagjöf?

„Ég væri alveg til í eitthvað fallegt frá Spaksmannsspjörum. Þar er allt svo tímalaust og fallegt.“

Hver er sniðugasta gjöfin sem þú hefur gefið á jólunum?

„Ég gaf manninum mínum tvisvar sömu jólagjöfina. Það var bók eftir Böðvar Guðmundsson sem var enn í plastinu eftir tvö ár svo ég pakkaði henni bara aftur inn og setti undir jólatréð! Mér og strákunum fannst þetta mjög fyndið. Ég held að hann hafi tekið hana úr plastinu þarna í seinna skiptið.“

Hvað ertu að gera nýtt og spennandi á verkstæðinu þínu?

„Hvítu hvannarstilkarnir eru klassískir og hef ég gert þá í 10 ár. Ég er nú að gera þá stóra og í fleiri litum, í svörtu og bronslit. Ég geri einnig bolla sem hafa verið vinsælir lengi en ég hannaði þá fyrst í náminu mínu. Þeir hafa verið í björtum og fallegum litum sem fólk hefur verið ánægt með.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál