Pör ársins 2021!

2021 var ár rómantískur og gleði. Þrátt fyrir að skemmtistaðir væru minna opnir á þessu ári en síðustu ár fann fólk maka. Sem kemur kannski ekki á óvart því það er löngu orðið útelt að finna sér lífsförunaut í myrkri um miðja nótt. Það myndu fáir kaupa sér bíl við slíkar aðstæður.

Sigurjón kominn með kærustu! 

Sigurjón Kjartansson leikstjóri og handritshöfundir er einn fyndnasti maður Íslands. Hann var einn af þeim sem fann ástina en sú lukkulega heitir Halldóra Guðbjörg Jónasdóttir og er snyrtifræðingur og nuddari. Parið býr nú á Selfossi og er ennþá jafn ánægt með hvort annað. 

Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir og Sigurjón Kjartansson.
Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir og Sigurjón Kjartansson.

Guðmundur Örn og Ragnhildur Sveinsdóttir

Guðmundur Örn Þórðarson fjárfestir sem oft er kenndur við Skeljung og Ragnhildur Sveinsdóttir fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára Guðjohnsen voru á ferð og flugi saman á árinu. Parið býr í sitthvoru landinu, hann á Íslandi en hún á Spáni, en það virðist ekki stoppa þau þegar ástin er annars vegar. 

Guðmundur Örn Þórðarson og Ragnhildur Sveinsdóttir eru kærustupar.
Guðmundur Örn Þórðarson og Ragnhildur Sveinsdóttir eru kærustupar. Ljósmynd/Samsett

Þórður og Berglind Festival

Þórður Gunnarsson verkefnastjóri hjá Sýn og Berglind Festival, eins og hún er kölluð, mættu saman í leikhúsið á frumsýningu, Vertu úlfur, í byrjun ársins. Parið hefur verið á fleygiferð í lífinu síðan og hefur hún verið að gera gott mót í þættinum, Vikan með Gísla Marteini. 

Þórður Gunnarsson og Berglind Pétursdóttir.
Þórður Gunnarsson og Berglind Pétursdóttir. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir

Freyr og Kolfinna Baldvins

Allt ætlaði um koll að keyra þegar Freyr Gylfason og Kolfinna Baldvinsdóttir skráði sig í samband á Facebook. Hann er kannski þekktastur fyrir það að hafa verið fréttastjóri á Stöð 2 en hún hefur unnið ýmis störf í gegnum tíðina á fjölmiðlum. 

Kolfinna Baldvinsdóttir er í sambandi með Frey Gylfason fyrrverandi fjölmiðlamanni
Kolfinna Baldvinsdóttir er í sambandi með Frey Gylfason fyrrverandi fjölmiðlamanni Skjáskot/Facebook

Ingibjörg Dögg og Jón Trausti

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson ritstjórar Stundarinnar voru búin að vinna saman í mörg ár þegar ástin blossaði upp og þau byrjuðu saman. Ekki með með það heldur keyptu þau raðhús á Seltjarnarnesi og fluttu inn ásamt börnum sínum. Nú vantar bara hund á heimilið til að taka vísitölu-stjúpfjölskylduna alla leið. 

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson ritstjórar Stundarinnar.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson ritstjórar Stundarinnar. Ljósmyndari/Heiða Helgadóttir

Bergþór og Laufey Rún

Ástin spyr ekki um stjórnmálaflokk eins og kom í ljós þegar Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins byrjaði með Laufeyju Rún Ketilsdóttur sem vinnur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Bæði höfðu þau verið töluvert lengi í lausagangi þegar ástin bankaði upp á. Nú eiga þau von á barni sem kemur í heiminn í byrjun sumar. Um er að ræða hennar fyrsta barn en Bergþór átti dóttur áður en þau hnutu um hvort annað. 

Guðmundur og Guðlaug

Guðmundur Hafsteinsson fjárfestir og fyrrverandi yfirmaður hjá Google og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir forstjóri byrjuðu saman á árinu. 

Guðmundur Hafsteinsson og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir eru nýtt par.
Guðmundur Hafsteinsson og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir eru nýtt par. Ljósmynd/Samsett

Ásdís Rán og Gísli 

Ásdís Rán Gunnarsdóttir fann ástina á árinu í fanginu á Gísla Elmarssyni. Þau höfðu þekkst lengi þegar þau rugluðu saman reitum. Hann býr í Svíþjóð en hún í Búlgaríu en hann starfar í banka og hefur umsjón með tölvukerfunum. Síðan þau byrjuðu saman hafa þau ferðast mikið og verði bæði á sólarströndum og í skíðaferðum. 

Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Gísli Elmarsson eru nýtt kærustupar.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Gísli Elmarsson eru nýtt kærustupar.

Björk fann ástina

Smartland greindi frá því að Björk Guðmundsdóttir sem er einn þekktasti tónlistarmaður landsins hefði fundið ástina. Sá heppni heitir Alex Jallow og er hann eigandi veitingastaðarins Ogolúgó á Laugavegi 85. 

Björk Guðmundsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Kristín Pétursdóttir komin á fast

Kristín Pétursdóttir leikkona og áhrifavaldur fann ástina á árinu í örmum kokksins Hauks Más Haukssonar. Hann hefur verið farsæll í starfi en hann rekur Yuzu-hamborgarastaðina ásamt fleirum. Parið hefur verið duglegt að njóta menningar og og lista saman og virðast vera sköpuð fyrir hvort annað. 

Kristín Pétursdóttir.
Kristín Pétursdóttir.
Haukur Már Hauksson.
Haukur Már Hauksson.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál