Þegar Steingrímur sprangaði um á sundskýlunni

Steingrímur Hermannsson þáverandi forsætisráðherra í viðtali við NBC í október …
Steingrímur Hermannsson þáverandi forsætisráðherra í viðtali við NBC í október 1986. Ljósmynd/Brynjar Gauti

Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, var áberandi í þriðja þætti Verbúðarinnar sem sýndur var í ríkissjónvarpinu í gær. Enn sem fyrr klóruðu yngri kynslóðir sér í kollinum þegar þáverandi forsætisráðherra landsins, sem leikarinn Benedikt Erlingsson túlkaði af sinni einskæru snilld, fór í viðtal við erlenda sjónvarpsstöð á sundskýlu.

Þeir sem eldri eru muna vel eftir þessu uppátæki forsætisráðherrans, en viðtalið var tekið hinn 9. október árið 1986. Tveimur dögum seinna fór fram fundur Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og Mikhails Gorbatjovs leiðtoga Sovétríkjanna í Höfða. Því var fjöldi erlendra fjölmiðlamanna kominn hingað til lands. 

Í umfjöllun DV frá 10. október sama ár segir að Steingrímur hafi meðal annars rætt um draugagang í Höfða í viðtalinu en viðtalið tók Tom Brokaw, fréttastjóri bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC. Viðtalið var fyrir fréttaþátt Brokaws á NBC, Nightly News with Tom Brokaw.

Benedikt Erlingsson í hlutverki Steingríms Hermannssonar við bakkann í Laugardalslaug.
Benedikt Erlingsson í hlutverki Steingríms Hermannssonar við bakkann í Laugardalslaug. Skjáskot/Rúv

Benedikt, sem túlkaði Steingrím á sundskýlunni í þætti gærkvöldsins, ræddi við Smartland fyrir þáttinn og greindi þar frá því að hann hefði þurft að þyngja sig um tíu kíló fyrir hlutverkið. 

„Ég borðaði allt sem mér finnst best eins og rjómaís með rjóma, súkkulaði og gott brauð frá Brauði og co. Svo borðaði ég mikið af kök­um og drakk bjór og vín í öll mál. Þetta var hrika­legt tíma­bil og ekki fyr­ir hvern sem er,“ sagði Bene­dikt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál