Instagram: Flókin staða í febrúar

Samsett mynd

Þó janúar og febrúar geti verið grámyglulegir mánuðir er alltaf stuð og stemning á Instagram og glansmyndin sýnd þar. Lífið getur verið flókið og það veit engin betur en leikkonan Kristín Pétursdóttir sem segir samband sitt og Hauks Más Hauksonar vera flókið. Rúrik Gíslason, fyrrverandi fótboltakappi og danssnillingur, birti myndir frá Afríkuferð sinni og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra rifjaði upp þegar hún sá sólina síðast. Smartland tók saman það helsta af Instagram. 

Áhrifavaldurinn og TikTok stjarnan Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir lét smella nokkrum myndum af sér í bílakjallara. Bílakjallarinn er uppáhaldsstaður áhrifavalda eins og Smartland fjallaði um fyrr á þessu ári. 

Fegurðardrottningin fyrrverandi og áhrifavaldurinn Fanney Ingvarsdóttir klæddi sig upp á föstudegi. 

Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir sýndi magavöðvana í ljósum toppi og brúnum leðurbuxum. 

Sambandsstaða leikkonunnar Kristínar Pétursdóttir er flókin um þessar mundir. Hún birti mynd af sér og kærasta sínum Hauki Má Haukssyni kokki. 

Samfélagsmiðlastjarnan Kara Kristel Signýjardóttir fór á djammið í Manchester á Bretlandseyjum. Kara er veðurteppt í borginni, en vegna veðurs var flugi hennar í dag aflýst.

 Tískurbloggarinn Pattra Sriyanonge þakkaði vinkonum sínum fyrir. 

View this post on Instagram

A post shared by Pattra S (@trendpattra)

 Fyrirsætan Nadía Sif Líndal klæddi sig upp á. 

Kírópraktorinn og áhrifavaldurinn Guðmundur Birkir Pálmason skellti sér í myndatöku. 

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar leysir af í útvarpinu á K100 í febrúar. Hann og Siggi Gunnars lofa mikilli stemningu milli klukkan 16 og 18 alla virka daga.

View this post on Instagram

A post shared by Friðrik Ómar (@fromarinn)

Áhrifavaldurinn Egill Fannar Halldórsson birti ævintýrafilmu frá Tenerife. 

Bubbi Morthens birti mynd af sér með Aroni Can.

Fyrrverandi fótboltakappinn Rúrik Gíslason birti mynd úr Afríkuferð sinni. 

Móeiður Lárusdóttir birti mynd af stækkandi kúlunni, en hún og Hörður Björgvin Magnússon eiga von á lítilli stúlku. 

Vinkonur áhrifavaldsins og verkfræðingsins, Katrínar Eddu Þorsteinsdóttur, komu henni á óvart með síðbúnu gæsapartí, en Katrín gifti sig í janúar.

View this post on Instagram

A post shared by Katrin Edda (@katrinedda)

Crossfit stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir saknar kærastans síns Brooks Laich. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, fékk smá D-vítamín um daginn. „Ég sá sól í smá um daginn,“ skrifaði ráðherrann á Instagram og birti mynd af sér í sandölum og á stuttbuxum. 

Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri stafrænna miðla hjá Bioeffect, fór í skíðaferð með vinkonuhópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál