Birgitta Líf komin með kærasta

Birgitta Líf Björnsdóttir er komin með kærasta.
Birgitta Líf Björnsdóttir er komin með kærasta.

Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og eigandi Bankastrætis Club, og Enok Vatnar Jónsson eru nýtt par samkvæmt heimildum Smartlands. Parið hefur verið að hittast undanfarnar vikur en þau hafa meðal annars sést saman í skíðaferð á Sauðárkróki og á Bankastræti Club. 

Enok er níu árum yngri en Birgitta en hann er fæddur árið 2001, en Birgitta árið 1992. Hann er alinn upp í Hafnarfirði og virðist hinn mesti lukkunnar pamfíll því nú hefur hann náð í eina eftirsóttustu einhleypu konu landsins. 

Birgitta rekur Bankastræti Club í miðborg Reykjavíkur og sinnir einnig markaðsmálum fyrir fjölskyldufyrirtækið World Class. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál