Heimsþekkt stjarna og smákrimmi hittast

Leikarinn Arnar Jónsson les hluta af bókinni Ókunn öfl, sem er fyrsta bókin í seríunni Sky & Fall. Bókin fjallar um Alexander DeFall sem er heimsþekkt kvikmyndastjarna og Rebecca Skyler sem er óþekktur smákrimmi. Hann er nýsnúinn heim til Svíþjóðar til að frumsýna þekkt leikverk en henni hefur nýlega tekist að svíkja peninga úr úthverfagengi. Þau hittast í fyrsta sinn á lögmannsstofu þegar þau eru upplýst um að þeim hafi fallið í skaut mikill arfur frá óþekktum einstaklingi.

Nýfengin verðmæti setja þau í mikla og óvænta hættu. Þau verða fyrir árás manna sem þau vita engin deili á og leggja á flótta til að bjarga lífi sínu. Þau verða að snúa bökum saman til þess að komast að því hver vill þau feig og hvers vegna.

Á sama tíma gerir rússneskt rannsóknarteymi merka uppgötvun í Síberíu. Í þiðnandi sífreranum finnst hlutur sem mun umbylta allri þekkingu manna á vísindum og sögu. Hvað hefur fundurinn með Rebeccu og Alexander að gera? Sannleikurinn er stærri og óþægilegri en nokkurn grunaði.

Stórar spurningar vakna; hver erum við og hvaðan komum við? Sænski höfundurinn Jesper Ersgård er þekktur fyrir bækur sínar Svartstjörnu og 1986 en með þríleiknum Sky & Fall slær hann öll met. Nú er hún aðgengileg hjá Storytel í úrvals lestri Guðmundar Inga Þorvaldssonar, Birnu Pétursdóttur, Stefáns Jónssonar og Arnars Jónssonar.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál