Instagram: Hver þarf Ísland?

Samsett mynd

Það er svo sannarlega vor í lofti, bæði á Instagram og í raunheimum. Vikan var svo sannarlega lífleg og þá sérstaklega um helgina. 

Heilsumarkþjálfinn Hera Gísladóttir hélt upp á þrítugsafmæli sitt um helgina og gerði gott betur og á sunnudaginn hélt hún sorgarveislu til að halda upp á sinn síðasta dag sem tutttugu og eitthvað ára gömul.

Leik- og söngkonan Þuríður Blær Jóhannsdóttir naut lífsins á Tenerife í síðustu viku áður en hún kom heim og var gestur Gísla Marteins Baldurssonar í Vikan með Gísla Marteini. 

 Móeiður Lárusdóttir veit að þegar kemur að ljósmyndum, þá snýst allt um réttu lýsinguna.

Viðskiptafræðingurinn og skóhönnuðurinn Andrea Röfn Jónasdóttir er hálfnuð með meðgönguna. 

View this post on Instagram

A post shared by Andrea Röfn (@andrearofn)

TikTok-stjarnan Embla Wigum fagnaði afmæli kærasta síns, Nökkva Fjalars Orrasonar, en hann varð 28 ára í vikunni sem leið. 

Fyrirsætan Nadía Sif Líndal hefur það gott á Ítalíu þessa dagana. 

Heilsumarkþjálfinn Hera Gísladóttir henti í veislu í tilefni af síðasta deginum áður en hún verður 30 ára. Kvöldið áður hélt hún upp á þrítugsafmælið sitt, en afmælisdagurinn er í dag. 

Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir minntist Parísarferða sem hún fór í fyrir ekki svo löngu. 

Brynja Dan, eigandi Extraloppunnar og varaþingmaður, fagnaði því að sonur hennar var tekinn í fullorðinna manna tölu um helgina. 

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson birti fallega mynd af eiginkonu sinni Hafdísi Björk Jónsdóttur. Hún gengur nú með þeirra fjórða barn og eru aðeins þrjár vikur í að litla krílið mæti í heiminn. 

Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi Bankastræti Club og markaðsstjóri World Class, fékk sér kampavín og skellti sér út á lífið. 

Verslunareigandinn Sara Lind Pálsdóttir, oft kennd við Júník, skellti sér í afmæli til Heru Gísladóttur. 

Helga Margrét Agnarsdóttir, lögfræðinemi, starfsmaður í Vero Moda og karókí­s­tjórn­andi á Sæta svín­inu, skellti sér á árshátíð Bestseller. 

Fyrirsætan Lára Clausen nýtur lífsins á Tenerife um þessar mundir. 

TikTok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir mátaði bleikan topp. 

Söngkonan Selma Björnsdóttir og fjölmiðlamaðurinn Kolbeinn Tumi Daðason skruppu út fyrir landsteinanna. Selma birti mynd af sér og kærastanum í Amsterdam. 

View this post on Instagram

A post shared by Selmabjorns (@selmabjorns)

Fjölmiðlakonan Steinunn Ása Þorvaldsdóttir skellti sér á tónleika með Katrínu Halldóru Sigurðardóttur. Hún fékk að sjálfsögðu mynd af sér með söng- og leikkonunni. „Þegar tvær dívur hittast þá er lífið dásamlegt,“ skrifaði Steinunn. 

Sam­fé­lags­miðlastjarn­an og guðfræðing­ur­inn Erna Krist­ín Stef­áns­dótt­ir birti fallegar myndir af sér í óléttmyndatöku en hún á von á tvíburum með manni sínum Bassa Ólafssyni á næstu vikum. 

Þúsundþjalasmiðurinn Felix Bergsson birti myndir af vonarstjörnum okkar Íslendinga í Eurovision 2022, Siggu, Betu og Elínu, þar sem þær voru umvafðar Eurovision-stjörnum annarra þjóða í Amsterdam. 

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir er með strendur Kúbu á heilanum um þessar mundir og reyndi hún að lækna útlandaþrána með því að deila gamalli mynd af sér njóta verunnar þar ytra. 

Tónlistarkonan Bríet er að gera það gott í Bandaríkjunum þessa dagana. 

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál