Snorri og Nadine Guðrún nýtt par

Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru nýtt par.
Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru nýtt par. Samsett mynd

Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri flugfélagsins Play, og Snorri Másson, fréttamaður á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni, eru nýtt par samkvæmt heimildum Smartlands. 

Snorri stýrði áður hlaðvarpsþáttunum Skoðanabræðrum, en hann hætti í þáttunum um áramótin og Jóhann Kristófer Stefánsson tók við keflinu af honum. Nadine var einnig fréttamaður á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni en hún hætti störfum þar á síðasta ári og tók við stöðu samskiptastjóra Play. Hún hefur einnig gert það gott í hlaðvarpsheiminum en hún og Þórhildur Þorkelsdóttir, kynningarfulltrúi BHM, settu nýverið á laggirnar þáttinn Eftirmál.

Snorri var á lista Smartlands yfir eftirsóttustu piparsveina landsins árið 2020. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál