Kristín og Haukur hætt saman

Kristín Pétursdóttir og Haukur Már Hauksson eru hætt saman.
Kristín Pétursdóttir og Haukur Már Hauksson eru hætt saman. Samsett mynd

Leikkonan, flugfreyjan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir og kokkurinn Haukur Már Hauksson eru hætt saman. Fréttablaðið greinir frá þessu og segir parið hafa skilið í góðu.

Kristín og Haukur opinberuðu samband sitt í nóvember á síðasta ári. Kristín er leikkona og hefur verið áberandi á Instagram en þar er hún með 22 þúsund fylgjendur. Fyrr á þessu ári stýrði hún þáttunum Make Up á Sjónvarpi Símans en nýverið hóf hún störf sem flugfreyja hjá Icelandair.

Haukur er kokkur á veitingastaðnum Yuzu sem hann rekur ásamt Jóni Davíð Davíðssyni og Sindra Jenssyni. 

Smartland óskar þeim báðum góðs gengis á þessum tímamótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál