Tengdasonurinn skalf á beinunum

Lionel Richie segir að tilvonandi tengdasonur hans hafi skolfið á …
Lionel Richie segir að tilvonandi tengdasonur hans hafi skolfið á beinunum þegar hann bað um hönd dótturinnar. AFP

Tónlistarmaðurinn Lionel Richie segir að tilvonandi tengdasonur hans Elliot Grainge hafi skolfið á beinunum úr kvíða þegar hann bað um hönd dóttur hans, Sofia Richie. Hann segist ætla hafa grínast aðeins meira í honum, en sá að þyldi ekki mikið. 

„Hann var algjör taugahrúga, greyið kallinn. Ég hélt það myndi líða yfir hann, en hann lifði þetta af. Ég ætlaði að grilla hann aðeins, en vildi ekki grínast of mikið, hann var að fara falla í yfirlið,“ sagði Richie í viðtali við Acess Hollywood á dögunum. 

Hin 23 ára gamla fyrirsæta Richie og Grainge, trúlofuðu sig á Havaí á dögunum og var bónorðið einstaklega rómantískt. Hið nýtrúlofaða par hefur verið saman síðan í apríl 2021 en þau hafa þekkst síðan þau voru bara krakkar. 

Richie gamla sagðist lítast vel á tengdasoninn tilvonandi þó hann hafi verið stressaður þegar hann bað um hönd dóttur hans.

„Þetta var yndislegt, þau eru svo ástfangin. Þannig ég get sagt ykkur, það er í raun eina það sem pabbar vilja,“ sagði Richie. 

„Ég elska Elliot. Ég hef þekkt hann síðan hann var 12 ára, hvað finnst ykkur um það? Þannig þetta eru svona aðstæður þar sem ég þarf ekki að fara og láta rannsaka manninn til að vita hver hann er,“ sagði Richie. 

Elliot Grainge bað Sophie Richie á Four Seasons Hualalai.
Elliot Grainge bað Sophie Richie á Four Seasons Hualalai. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál