Camilla Rut og Rafn skilja eftir 13 ára samband

Camilla Rut og Rafn tilkynntu ákvörðunina í sameiningu á instagram.
Camilla Rut og Rafn tilkynntu ákvörðunina í sameiningu á instagram. Skjáskot/Instagram

Camilla Rut Rúnarsdóttir áhrifavaldur og eiginmaður hennar, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, hafa tekið ákvörðun um að skilja.

Þau tilkynntu þessa tímamótaákvörðun á Instagram, í sameiningu, með kvöldsólina í augunum. 

Camilla og Rafn eru búin að vera saman í þrettán ár og eiga saman tvo syni. Sambandsslitin áttu sér langan aðdraganda, að þeirra sögn. Þau skilja þó í sátt og samlyndi. 

„Byrjuðum sem bestu vinir, enduðum bestu vinir,“ sagði Camilla í myndbandinu. 

Brúðkaup þeirra Camillu og Rafns vakti mikla athygli á sínum tíma en þau gengu í hjónaband árið 2017. Þá sýndi Camilla frá undirbúningnum á Snapchat.

Smartland óskar þeim góðs gengis á þessum stóru tímamótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál