Helga og Bragi Þór gengu í hjónaband

Bragi Þór Hinriksson og Helga Arnarsdóttir gengu í hjónaband á …
Bragi Þór Hinriksson og Helga Arnarsdóttir gengu í hjónaband á laugardaginn. Ljósmynd/Erna Ísabella Bragadóttir

Helga Arnardóttir og Bragi Þór Hinriksson gengu í hjónaband á laugardaginn var. Athöfnin sjálf fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík og var það Guðni Már Harðarson sem gaf hjónin saman. Eftir athöfn var haldið í Iðnó, þar sem ráðahagnum var fagnað af öllu hjarta.

Helga hefur starfað lengi í fjölmiðlum en Bragi Þór er leikstjóri. Parið hnaut um hvort annað fyrir nokkrum árum en 2020 eignuðust þau son. Þau eiga alls fjögur börn. 

Smartland greindi frá því á dögunum að Helga og Bragi Þór hygðust flytja þegar þau settu íbúð sína í Hlíðunum í Reykjavík á sölu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál