Aldrei hamingjusamari eftir 40 ára hjónaband

Ozzy og Sharon Osbourne.
Ozzy og Sharon Osbourne. AFP

Stjörnuparið Ozzy og Sharon Osbourne fögnuðu í gær 40 ára brúðkaupsafmæli sínu. Ozzy deildi mynd á Instagram af þeim hjónunum á brúðkaupsdeginum þar sem þau eru nær óþekkjanleg í hvítum klæðum með ljósa lokka. 

„Fyrir 40 árum! Til hamingju með brúðkaupsafmælið ástin mín,“ skrifaði rokkarinn við myndina. 

Sharon deildi einnig mynd af þeim á Instagram, en þar eru þau þónokkuð rokkaralegri.

Ozzy og Sharon eiga saman þrjú börn, þau Aimée, Kelly og Jack. Það er óhætt að segja að hjónaband þeirra hafi ekki verið dans á rósum, en þau hættu saman um tíma í maí 2016 eftir 33 ára hjónaband þegar upp komst um framhjáhald Ozzy. Þau náðu þó sáttum og endurnýjuðu heit sín í september sama ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál