Instagram: Skemmtilegasta vika ársins?

Samsett mynd

Síðasta vika var svo sannarlega viðburðarík á Instagram enda margir í sumarfríi og flestir að taka sér eitthvað skemmtilegt fyrir hendur. Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir gekk að eiga Hilmar Arnarson og héldu þau stórfenglega veislu á Sjálandi á föstudagskvöld. Vinahópur athafnamannsins Ásgeirs Kolbeinssonar og Egils Einarssonar einkaþjálfara skelltu sér til Belgíu á tónlistarhátíðina Tomorrowland. 

Leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson fóru í hestaferð. 


Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar var sömu ferð. 

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir voru einnig með í ferð. Bjarni birti myndir úr Drangey og Merkigili.

Tónlistarkonan Birgitta Haukdal tróð upp á Bræðslunni á Borgarfirði Eystra og steig meðal annars á svið með sveitungum sínum í hljómsveitinni Skálmöld.

Umboðsmaðurinn Nökkvi Fjalar Orrason minnti fólk á að vanda valið á fólkinu sem maður eyðir tíma með.

View this post on Instagram

A post shared by Nikki Fjalar (@nokkvifjalar)

Heilsumarkþjálfinn Hera Gísladóttir birti fallegar myndir af sér og manni sínum Ásgeiri Kolbeinssyni.

Hera birti líka glæsilega mynd af þeim Guðríði Jónsdóttur snyrtifræðingi og Önnu Sóley Birgisdóttur saman á Tomorrowland.

Tónlistarkonan Sigríður Thorlacius og hljómsveitin Góss héldu tónleika í Ásbrekku á laugardagskvöldið. 

Útvarpskonan Kristín Sif Björgvinsdóttir birti töff mynd af sér og kærastanum, tónlistarmanninum Stebba Jak á mærudögum á Húsavík. 

Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir skellti sér til Keflavíkur ásamt Helgu Margréti Agnarsdóttur. 

Sandra Björg Helgadóttir birti fallega mynd úr brúðkaupi sínu og Hilmars Arnarsonar. Þau gengu í það heilaga í Háteigskirkju og fór veislan fram á Sjálandi í Garðabæ. 

Leikkonan Unnur Eggertsdóttir var á meðal gesta í brúðkaupi Söndru og Hilmars.

Fjölmiðlakonan og plötusnúðurinn Dóra Júlía Agnarsdóttir líka en hún og kærasta hennar, Bára Guðmundsdóttir voru í stíl í brúðkaupinu. 

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir birti líka fallegar myndir af sér og kærasta sínum Enoki Jónssyni úr brúðkaupinu. 

Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra segir að það sé engu líkt að njóta á Íslandi.

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir birti fleiri myndir úr myndatöku sem hún fór í fyrir nokkrum dögum. 

View this post on Instagram

A post shared by SVALA (@svalakali)

Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor fékk sér vínglas. 

Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir og kvikmyndaframleiðandinn Magnús Viðar Sigurðsson gengu í hjónaband í Ásbyrgi um helgina. Saga Garðarsdóttir leikkona og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Snorri Helgason voru á meðal gesta. 

Það væsir ekki um TikTok-stjörnuna Brynhildi Gunnlaugsdóttur í Króatíu.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir var glæsileg í dragt og fékk hún sitt augnablik. 

View this post on Instagram

A post shared by CAMY (@camillarut)

Áhrifavaldurinn Guðrún Veiga Guðmundsdóttir skellti sér til Dublin á Írlandi um helgina ásamt eiginmanni sínum Guðmundi Þór Valssyni. Eiginmaðurinn sló í gegn sem myndasmiður eins og vanalega.

View this post on Instagram

A post shared by Guðrún Veiga (@gveiga85)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál