Erna og Ari saman í 15 ár

Erna Kristín Ottósdóttir og Ari Freyr Skúlason hafa verið saman …
Erna Kristín Ottósdóttir og Ari Freyr Skúlason hafa verið saman í 15 ár og gift í sjö ár.

Fótboltamaðurinn Ari Freyr Skúlason og Erna Kristín Ottósdóttir þroskasálfræðingur fögnuðu 7 ára brúðkaupsafmæli nú í vikunni. Hjónin hafa þó verið saman rúmlega tvöfalt lengur eða í 15 ár. 

Ari og Erna fögnuðu áfanganum með fallegum myndum á Instagram. Þau eiga saman þrjú börn, Henry Leo, Gebríel Elí og Camillu Ósk. 

„15 ár saman og 7 ár gift. Takk fyrir að velja mig og lífið okkar á hverjum degi,“ skrifar Erna við fallega myndaseríu.

Ari hefur spilað með liðum í Danmörku og Belgíu en um þessar mundir er fjölskyldan búsett í Svíþjóð þar sem Ari leikur með IFK Norrköping. Hann á einnig 83 leiki með A-landsliði karla og lék með liðinu á Evrópumeistaramótinu árið 2016 og Heimsmeistaramótinu árið 2018.

View this post on Instagram

A post shared by Erna (@ernako)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál