Drífa fær lík eiginmannsins afhent

Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir og Haraldur Logi Hrafnkelsson.
Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir og Haraldur Logi Hrafnkelsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir, heildsali og ekkja Haraldar Loga Hrafnkelssonar, hefur barist fyrir því að fá lík hans afhent til þess að hægt sé að koma því til Íslands. Haraldur Logi lést í eldsvoða á Tenerife á Spáni 6. febrúar á þessu ári. 

„Við erum smá að fagna. Við erum búnar að fá fréttir um það að við erum að fara að fá Halla til okkar. Ég var á fundi í morgun og aftur núna seinni partinn með útfararþjónustu og það lítur allt út fyrir að við getum fengið Halla til okkar,“ segir Drífa Björk á instagramsíðu sinni. 

Hún segist hafa verið á tröppunum hjá lögreglunni síðan Haraldur Logi féll frá til þess að fá lík hans afhent. Hún segir frá því að líkið verði brennt á Tenerife og í framhaldinu verði það flutt til Íslands. 

„Þeir ætla sem sagt af mannúðarástæðum að afhenda hann þrátt fyrir að málinu sé ekki lokið. Þeir eru ennþá að reyna að finna upptök eldsins. Við fjölskyldan erum búin að vera nánast á tröppunum hjá lögreglunni,“ segir Drífa Björk jafnframt.

Hún segir að það stefni í það að þeir muni skrifa á dánarvottorðið að Haraldur Logi hafi látist af slysförum þrátt fyrir að enn sé ekki búið að rannsaka málið til hlítar. Enn eigi eftir að finna upptök eldsins en í húsi hjónanna kviknaði þennan örlagaríka dag. 

„Við fjöl­skyld­an vökn­um á sunnu­dags­morg­un við að það er kom­inn upp eld­ur í hús­inu okk­ar á Teneri­fe,“ seg­ir Drífa. Elsta dótt­ir henn­ar fer á fæt­ur, sér eld­inn og ger­ir móður sinni viðvart sem hring­ir svo í neyðarlín­una. Viðbragðsaðilar koma á svæðið, koma fjöl­skyld­unni í ör­uggt skjól og slökkva eld­inn. 

„Þegar það er búið koma þeir til mín og segj­ast hafa fundið mann­inn minn í annarri af tveim­ur bif­reiðum í bíl­skúrn­um og hafi hann strax verið úr­sk­urðaður lát­inn,“ sagði Drífa Björk á instagram í síðustu viku. Hún seg­ir þau hafa farið strax á lög­reglu­stöðina þar sem skýrsla var tek­in af þeim og svo fór hún í að finna hót­el­her­bergi fyr­ir þau. Húsið var óíbúðar­hæft og báðir bíl­ar þeirra ónýt­ir. 

Næstu mánuðir fóru í bið að sögn Drífu. Þau fjöl­skyld­an bjuggu á hót­eli á Tenerife í þrjá mánuði og börn­in héldu áfram skóla­göngu sinni. Á meðan reyndi hún að fá svör frá spænsk­um yf­ir­völd­um um hvenær hún gæti fengið lík eig­in­manns síns af­hent. Nú virðist vera að rofa til en Drífa Björk ætlar að halda minningarathöfn fyrir Harald 23. ágúst. 

Haraldur Logi Hrafnkelsson lést í eldsvoða á Tenerife.
Haraldur Logi Hrafnkelsson lést í eldsvoða á Tenerife.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál