Framúrskarandi stjörnumæðgin

Samsett mynd

Það eru ekki bara til stjörnumæðgur, feðgar og feðgin á Íslandi heldur líka stjörnumæðgin líka eins og listi Smartlands ber vott um. Enginn er góður í öllu en allir eru góðir í einhverju líkt og mæðginin á þessum lista. 

Edda Björgvinsdóttir og Björgvin Franz Gíslason

Mæðginin Edda og Björgvin eru á meðal ástsælustu leikara þjóðarinnar þó ekki séu þau af sömu kynslóð. Björgvin fetaði í fótspor foreldra sinna sem slógu bæði í gegn á leiklistarsviðinu. 

Edda Björgvinsdóttir og Björgvin Franz Gíslason.
Edda Björgvinsdóttir og Björgvin Franz Gíslason. Samsett mynd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Gísli Þorgeir Kristjánsson

Þorgerður Katrín er þingmaður Viðreisnar og hefur komið víða við í pólitíkinni. Sonur hennar Gísli Þorgeir hefur erft eitthvað af ákveðni móður sinnar, enda í íslenska landsliðinu í handbolta og leikmaður Magdeburg í Þýskalandi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Gísli Þorgeir Kristjánsson.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Gísli Þorgeir Kristjánsson.

Ágústa Johnson og Rafn Franklín Hrafnsson

Ágústa Johnson hefur verið leiðandi í heilsugeiranum á Íslandi undanfarna áratugi. Sonur hennar Rafn Franklín gefur ekkert eftir og hefur einnig skapað sér nafn í sama geira.

Ágústa Johnson og Rafn Franklín Hrafnsson.
Ágústa Johnson og Rafn Franklín Hrafnsson. Samsett mynd

Lína Rut Wilberg og Már Gunnarsson

Listakonan Lína Rut Wilberg skapar hvert meistaralistaverkið á fætur öðru. Hennar stærstu verk eru þó börnin hennar og eitt þeirra er söngelski sundkappinn Már Gunnarsson sem nýverið lagði skýluna á hilluna og ætlar að einbeita sér að tónlist.

Lína Rut Wilberg og Már Gunnarsson.
Lína Rut Wilberg og Már Gunnarsson. Samsett mynd

Móeiður Júníusdóttir og Ari Elías Arnalds

Móeiður var áberandi í íslensku tónlistar- og samkvæmislífi undir lok síðustu aldar en hún byrjaði nýverið að semja tónlist aftur. Sonur hennar Ari Elías Arnalds er að stíga sín fyrstu skref í tónlist og gáfu þau meðal annars út lag saman í sumar.

Ari Elías Arnalds og Móeiður Júníusdóttir.
Ari Elías Arnalds og Móeiður Júníusdóttir.

Margrét Jónsdóttir Njarðvík og Snorri Másson

Margrét Jónsdóttir er rektor Háskólans á Bifröst um þessar mundir. Sonur hennar er Snorri Másson, fréttamaður á Vísi, Bylgjunni og Stöð 2. 

Margrét Jónsdóttir Njarðvík og Snorri Másson.
Margrét Jónsdóttir Njarðvík og Snorri Másson. Samsett mynd

Sigrún Davíðsdóttir og Davíð Helgason

Sigrún Davíðsdóttir lét nýverið af störfum sem fréttaritari og blaðamaður eftir að hafa unnið á Ríkisútvarpinu svo áratugum skiptir. Sonur hennar er Davíð Helgason milljarðamæringur.

Sigrún Davíðsdóttir og Davíð Helgason.
Sigrún Davíðsdóttir og Davíð Helgason. Samsett mynd

Björk Guðmundsdóttir og Sindri Eldon

Sindri Eldon er eldra barn Bjarkar Guðmundsdóttur sem varla þarf að kynna fyrir landsmönnum, enda ein frægasta listakona sem landið hefur getið af sér. Sindri er tónlistarmaður eins og móðir sín.

Björk Guðmundsdóttir og Sindri Eldon.
Björk Guðmundsdóttir og Sindri Eldon. Samsett mynd

Edda Arnljótsdóttir og Sigurður Ingvarsson

Börn leikarahjónanna Eddu Arnljótsdóttur og Ingvars E. Sigurðssonar eru með eindæmum hæfileikarík, líkt og foreldrar sínir. Edda hefur unnið sem leikkona í fleiri, fleiri ár. Sigurður sonur hennar hefur fetað í fótspor í foreldra sinna.

Edda Arnljótsdóttir og Stefán Ingvarsson.
Edda Arnljótsdóttir og Stefán Ingvarsson. Samsett mynd

Agnes M. Sigurðardóttir og Sigurður Hannesson

Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands. Sigurður sonur hennar er framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins og tók fyrr á þessu ári við sem stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Agnes M. Sigurðardóttir og Sigurður Hannesson.
Agnes M. Sigurðardóttir og Sigurður Hannesson. Samsett mynd

Agnes Kristjónsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson

Agnes Kristjónsdóttir hefur um árabil starfað sem einkaþjálfari, söngkona og í kvikmyndageiranum. Sonur hennar er leikarinn Haraldur Ari, sem fór meðal annars með hlutverk í Ófærð 3 og var í hljómsveitinni Retro Stefson.

Agnes Kristjónsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson.
Agnes Kristjónsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson. Samsett mynd

Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Ríkharður Daðason

Ragnheiður Ríkharðsdóttir sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn var síðar bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Sonur hennar er Ríkharður Daðason, betur þekktur sem Rikki Daða, fagfjárfestir og fyrrverandi fótboltahetja.

Ragnheiður Ríkarðsdóttir og Ríkharður Daðason.
Ragnheiður Ríkarðsdóttir og Ríkharður Daðason. Samsett mynd

Margrét Sigfúsdóttir og Sigfús Sigurðsson

Margrét lét af störfum sem skólastjóri Hússtjórnaskólans í Reykjavík á dögunum. Margrét er þekkt í íslensku samfélagi og margir sakna hennar úr þáttunum Allt í drasli sem sýndir voru á Skjá Einum á sínum tíma. Sonur hennar Sigfús var lengi ein fremsta stjarna Íslands í handbolta og átti góðu gengi að fagna með félagsliðum á ferlinum.

Margrét Sigfúdsdóttir og Sigfús Sigurðsson.
Margrét Sigfúdsdóttir og Sigfús Sigurðsson. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál