Áfallasaga kvennanna markerar þær

Rósa Björg Brynjarsdóttir forstöðukona í Skjólinu.
Rósa Björg Brynjarsdóttir forstöðukona í Skjólinu.

Rósa Björg Brynjarsdóttir, forstöðukona í Skjólinu, sem er úrræði fyrir heimilislausar konur, er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman. Mikið hefur verið í umræðunni hversu mikil vöntun er á úrræðum í málaflokknum og þá sérstaklega fyrir heimilislausa karlmenn á Íslandi. 

Skjólið er úrræði fyrir konur sem opið er alla virka daga frá 10.00 á morgnana þegar Konukot lokar. Skjólið er opið til 15.00 á daginn og þar geta þær konur sem þurfa á að halda leitað skjóls, farið í sturtu, fengið heitan og góðan mat, aðstoð við að greiða úr alls kyns vandamálum og haft aðgang að öruggu neyslurými.

Rósa segir að þær sem vinna í Skjólinu hafi allar bakgrunn úr Konukoti og því hafi verið tiltölulega auðvelt að tengjast konunum þegar þær fóru að mæta í Skjólið. 

„Við erum ekki að bjarga neinum, við erum að aðstoða konurnar við að sinna grunnþörfum sínum og lækka þröskulda,“ segir Rósa og bætir við að oft komi fólk innan kerfisins í Skjólið til að hitta konurnar því það geti verið óyfirstíganlegt verkefni fyrir þær að ganga inn á stofnun til að hitta þessa einstaklinga.

Aðspurð um tilkomu þessa úrræðis segir Rósa að Agnes Sigurðardóttir biskup hafi látið gera úttekt á því hvar vandinn væri mestur. Hvar þyrfti að bregðast við strax og var niðurstaðan sú að heimilislausar konur og þær sem byggju við ótryggar aðstæður þyrftu aðstoð. Úrræðið, sem staðsett er í kjallara Grensáskirkju, er rekið af kirkjunni. 

Í Skjólinu er unnið eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði og konunum mætt á þeim stað sem þær eru hverju sinni.

„Það er öruggt neyslurými en reglur og rammi í kring um alla neyslu. Þær eru velkomnar þrátt fyrir að vera undir áhrifum en fara ekki með áfengi eða annað inn í hús. Það er geymt í læstum skápum sem þær hafa til umráða. Þær drekka og reykja úti en nota um æð og þess háttar í öruggu rými þar sem allt er skráð og vel fylgst með,“ segir hún og bætir við: 

„Konurnar sem leita til Skjólsins eru allar venjulegar konur, eins og ég og þú. Það sem þær eiga sameiginlegt er að allar eiga þær áfallasögu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál