Instagram: Laus úr fangelsi, afmælistónleikar og edrúafmæli

Samsett mynd

Íslensku stjörnurnar voru í blússandi stemningu á instagram í vikunni. Það bar hæst um helgina að áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, fyrrverandi kærasti Svölu Björgvinsdóttur, losnaði úr fangelsi á Spáni. Tónlistarmaðurinn Aron Can fagnaði svo 23 ára afmæli með tónleikum í Hörpu og Herra Hnetusmjör fagnaði sex ára edrúafmæli.

Laus úr fangelsi!

Kristján Einar Sigurbjörnsson losnaði úr fangelsi á Spáni um helgina. Kristján Einar var búinn að sitja inni síðan í mars og var frelsinu sannarlega feginn.

Ánægð með nýju varirnar!

Lára Clausen fékk sér fyllingar í varirnar á dögunum. 

Edrú í sex ár!

Rapparinn Herra Hnetusmjör fagnar því að hafa verið allsgáður í sex ár!

Blá stígvél!

Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn Elín Erna Stefánsdóttir kann svo sannarlega að klæðast litum. Um helgina skellti hún sér í glæsileg blá stígvél.

Skellti sér í Vök!

Brynhildur Gunnlaugsdóttir tiktokstjarna skellti sér í Vök Baths á dögnum. Vök baths vann einmitt nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar nýverið.

Tveggja ára!

Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir fagnaði því á dögunum að fyrirtæki hennar Glamista væri orðið tveggja ára.

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

Fléttur!

Söngkonan Gugusar skellti tveimur fléttum í toppinn.

View this post on Instagram

A post shared by gugusar (@gugusar_)

Baksviðsfílingur!

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leik- og söngkona birti baksviðsmyndir frá Iceland Airwaves.

View this post on Instagram

A post shared by DÍSA (@thordisbjork)

Ástrós í sveitinni!

Dansarinn og raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir skellti sér í sveitina.

Kvöldstund á Edition!

Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir klæddi sig upp fyrir Chanel-kvöldstund á Reykjavík Edition. 

Til í Idol-ið!

Söngkonan Bríet er klár í Idol-slaginn sem hefst í þessari viku.

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)

Orðlaus!

Tónlistarmaðurinn Aron Can hélt upp á 23 ára afmæli sitt í Hörpu um helgina.

Þriggja barna foreldrar!

Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festar hf. og Bolli Thoroddsen eignuðust sitt þriðja barn um helgina.

Foreldrafrí í Stokkhólmi!

Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir, hönnuðir og eigendur Haf Studio og Haf Store, nutu til hins ýtrasta foreldrafrís í Stokkhólmi. 

Brosa út að eyrum með bronsverðlaun!

Íslenska karlalandsliðið í áhaldafimleikum náði ótrúlegum árangri á Norður-Evrópumótinu sem haldið var í Finnlandi um helgina og hlaut þar bronsverðlaun. 

Glitrandi í vinkonuferð!

Áhrifavaldarnir Sunneva Eir Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir skelltu sér í vinkonuferð til Parísar á dögunum.  

Barnlaus í Tampa!

Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal er í Flórída í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hann og Óskar Örn Hauksson skelltu sér barnlausir til Tampa.

Töfrandi!

Edda Lovísa Björgvinsdóttir klámstjarna birti töfrandi myndir af sér á undirfötunum.

View this post on Instagram

A post shared by Edda Lovisa🧿 (@eddalovis)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál