Landsmenn rönkuðu við sér í vikunni enda fátt meira hressandi en fá sér svolítið af hrútspungum og rófustöppu. Landið er að rísa og birtustig að hækka. Þeir aðilar sem létu rófustöppuna eiga sig náðu að endurhlaða batteríin á sólríkari slóðum. Kvenpeningurinn sem er á föstu minnti sig og internetið á hvað það er gott að elska en heilu lestirnar af bóndadagsmyndum flæddu yfir félagsmiðla.
Berglind Saga Björnsdóttir tónlistarkona, betur þekkt sem Saga B. skellti sér niður í miðbæ Reykjavíkur í síðustu viku.
Fegurðardrottningin Elísa Gróa Steinþórsdóttir birti mynd frá Miss Universe-keppninni á síðasta ári og óskaði Hrafnhildi Haraldsdóttur til hamingu með gott gengi í keppninni í ár.
Elín Erna Stefánsdóttir, áhrifavaldur og förðunarfræðingur, birti stutta myndaseríu.
TikTok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir birti glæsilega mynd af sér í grænum samfesting.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir fagnaði bóndadeginum með að birta fallega mynd af sér og sínum bónda, Benedikt Bjarnasyni.
Helga Margrét Agnarsdóttir var allavega best klædd þegar hún fór í keilu í síðustu viku.
Leik- og söngkonan, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, birti myndir af sínum bónda, Júlí Heiðari, á bóndadaginn.
Berglind Festival Pétursdóttir fjölmiðlakona fór á stúfana fyrir Vikuna með Gísla Marteini.
Leikstjórinn og tónlistarmaðurinn, Jóhann Kristófer Stefánsson, birti skemmtilega og fjölbreytta myndaseríu frá Tenerife.
Svala Björgvinsdóttir tónlistarkona var með gigg um helgina ásamt Kristófer Nökkva Sigurðssyni.
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Annie Mist Þórisdóttir voru á meðal fjölda íslenskra keppenda á Wodapalooza í Flórída um daginn.
Ásdís Ósk Valsdóttir, miðaldra kona og fasteignasali, birti fallega mynd af sér og kærasta sínum.
Bloggarinn og ljósmyndarinn, Helgi Ómarsson, hélt upp á bóndadaginn með kærasta sínum, Pétri Björgvini Sveinssyni.
Greta Salómé Stefánsdóttir söngkona tók son sinn með í vinnuna.
Klámstjarnan Edda Lovísa Björgvinsdóttir birti seiðandi mynd af sér.
Ísdrottningin Ásdís Rán birti sjóðandi heita mynd af sér í svörtum fötum.
Verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir fagnaði eins árs brúðkaupsafmæli með sínum manni, Markusi.
Ljósmyndarinn Saga Sig birti glæsilega mynd af sér í kjól með hlébarðamynstri.
Birkir Bjarnason fótboltastjarna er staddur í Tyrklandi þessa dagana þar sem hann naut strandlífsins.
Helga Hlín Hákonardóttir lögmaður naut sín á brimbretti í Kosta Ríka.
Bryndís Hera Gísladóttir einkaþjálfari er stödd á Tenerife um þessar mundir ásamt Ásgeiri Kolbeinssyni kærasta sínum.
Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari er himinlifandi með bóndann sinn, Aron Einar Gunnarsson.